Svikasögur

Árið er 1984 og Nanna stendur á þeim ómótstæðilegu og óbærilegu mörkum þess að vera barn og unglingur, Hún er líka milli tveggja elda þegar foreldrar hennar takast á og toga hana í ólíkar áttir. Hvernig er hægt að treysta fullorðnu fólki sem segir eitt en gerir annað? Hvort er raunverulega verra, að stela sígarettum eða halda framhjá?
Í Svikasögum heldur María Reyndal áfram að vinna með stórskemmtilegar en flóknar fjölskyldusögur sem eru orðnar hennar aðalsmerki eftir velgengni Er ég mamma mín og Með Guð í vasanum.
Hér gefur María okkur innsýn í sögu unglingsstúlku á níunda áratugnum, hvers líf fer á hliðina þegar heimilisfaðirinn hverfur óvænt af sögusviðinu. Í átökunum sem fylgja klofnar fjölskyldan og ekkert verður aftur samt. Inn í frásögnina flækjast ættboginn allur, besta vinkonan í næsta húsi, rottugangur, túrbankellingar, óperusöngur og níundi áratugurinn í allri sinni dýrð. Með sinni einstöku næmni fyrir mannlegum breyskleika og kómískri sýn á lífið, dregur María upp grátbroslega mynd af sundrungu í kjarnafjölskyldu.
María er þekkt fyrir sviðsverk sín sem og afrek á skjánum en hún er ein af höfundum gamanþáttanna vinsælu, Stelpnanna, en skrifaði einnig og leikstýrði verðlaunaþáttunum Mannasiðum. Þá var hún einnig einn af handritshöfundum Ástríðar og einn af leikstjórum Verbúðarinnar.
María leiðir magnaðan leikhóp og óhætt er að búast við hlátrasköllum í bland við hjartaskerandi andartök.




