Nýtt eldhús eftir máli frumsýnt í Þjóðleikhúsinu | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Nýtt eldhús eftir máli frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

    Nýtt eldhús eftir máli, verður frumsýnt í Kassanum 17. september.

    Fantasía og raunveruleiki mætast í nýju leikriti Friðgeirs Einarssonar sem frumsýnt verður í Kassanum 17. september. Verkið fjallar á grátbroslegan hátt um hversdagsleikann, einmanaleika, nánd og leitina að tilgangi.

    Nýtt íslenskt leikrit, Nýtt eldhús eftir máli eftir Friðgeir Einarsson, verður frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 17. september. Björn Thors leikstýrir verkinu og með hlutverk fara Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Salka Gústafsdóttir og Ólafur Ásgeirsson.

    Í miðju sögunnar eru hjónin Daníel og Soffía. Þegar Daníel missir vinnuna fer athygli hans smám saman að beinast að eldhúsinnréttingu heimilisins og öllum þeim möguleikum sem felast í að gera á henni úrbætur. Soffía deilir þó ekki áhuga hans af sama ákafa.

    Hugmyndir Daníels um draumaeldhúsið taka sífellt meira pláss og fantasía og raunveruleiki fara að renna saman. Kynórar um starfsfólk innréttingabúða blandast hversdagsleikanum og búsáhöldin sjálf lifna við og leggja orð í belg.

    Undir kómísku yfirborðinu glímir verkið við stærri spurningar um tilbreytingarleysi hversdagsins, einmanaleika og þörfina fyrir nánd og tengsl. Hvað tekur við þegar markmiðunum hefur verið náð og hlutirnir sem áttu að færa okkur hamingju duga ekki lengur?

    Tilvísun í Svövu Jakobsdóttur

    Titill verksins vísar til þekktrar smásögu Svövu Jakobsdóttur, Eldhús eftir máli, sem birtist fyrst árið 1966. Sextíu árum síðar nálgast Friðgeir Einarsson kynhlutverk og samskipti kynjanna frá sjónarhorni samtímans.

    Friðgeir hefur komið víða við í íslensku leikhúslífi sem leikskáld og leikari og er jafnframt einn meðlima leikhópsins Kriðpleirs. Nýtt eldhús eftir máli er fyrsta leikritið sem hann skrifar fyrir leikhóp Þjóðleikhússins. Verkið var áður flutt á leikritahátíð Þjóðleikhússins, Gula dreglinum.

    Hilmar Guðjónsson leikur Daníel og Ilmur Kristjánsdóttir fer með hlutverk Soffíu. Salka Gústafsdóttir leikur meðal annars búðarkonu og Ólafur Ásgeirsson fer meðal annars með hlutverk Ingós.

    Leikmynd og búningar eru í höndum Elínar Hansdóttur og Filippíu I. Elísdóttur, Margrét Bjarnadóttir sér um sviðshreyfingar og Örvar Þóreyjarson Smárason semur tónlist. Lýsingu annast Björn Bergsteinn Guðmundsson og Jóhann Bjarni Pálmason og Þóroddur Ingvarsson sér um hljóðhönnun.

    Nýtt eldhús eftir máli verður frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 17. september.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!