Óperan auglýsir eftir söngvurum í Kór Óperunnar fyrir starfsárið 2026–2027

Umsóknarfrestur rennur út 24. ágúst og áheyrnarprufur fara fram í Hörpu í september.
Óperan hefur hafið undirbúning að sínu fyrsta starfsári og auglýsir eftir söngvurum í Kór Óperunnar fyrir starfsárið 2026–2027. Leitað er að söngvurum í allar raddir og verða þátttakendur ráðnir til verkefna með launuðum æfingum og sýningum.
Kórinn kemur meðal annars fram á opnunartónleikum Óperunnar í Reykjavík í nóvember 2026 og tekur þátt í uppfærslu á óperunni Falstaff, sem frumsýnd verður í Hörpu í mars 2027. Æfingar hefjast í október 2026.
Umsóknir og áheyrnarprufur
Söngvarar sem hafa áhuga eru beðnir um að senda ferilskrá eða stutt æviágrip ásamt nýlegri hljóð- eða myndupptöku. Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.
Áheyrnarprufur fara fram í Hörpu dagana 7.–10. september. Umsækjendur skulu undirbúa tvær aríur: aðra að eigin vali og hina af fyrirfram skilgreindum lista eftir raddgerð. Þá þarf einnig að undirbúa tvö kórverk samkvæmt leiðbeiningum fyrir viðkomandi raddir.
Mismunandi verk eftir raddgerðum
Fyrir sóprana eru meðal annars valkostir úr Die Zauberflöte og Le nozze di Figaro, mezzósópranar og altar velja meðal annars úr Der Evangelimann eða Le nozze di Figaro, tenórar flytja aríur úr Die Zauberflöte eða L’elisir d’amore, en barítónar, bassabarítónar og bassar velja verk úr meðal annars Faust, Don Giovanni og Die Zauberflöte.
Aríurnar skulu vera utanbókar, en dómnefnd áskilur sér rétt til að hlýða aðeins á hluta þeirra.
Kórverk einnig hluti af prufunum
Auk aría skulu umsækjendur undirbúa kórverk. Kvenraddir syngja Au secours! úr Carmen, karlraddir Zitti, zitti úr Rigoletto og allir þátttakendur undirbúa lokakór úr Tannhäuser eftir Richard Wagner. Heimilt verður að nota nótur í kórverkunum.




