Ormstunga tilnefnd til flestra Grímuverðlauna | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Ormstunga tilnefnd til flestra Grímuverðlauna

    Rán Ragnarsdóttir og Jakob van Oosterhout leika Helgu og Gunnlaug hlutu bæði tilnefningu fyrir þátttöku sína í Ormstungu í uppfærslu Þjóðleikhússins Samtals er sýningin tilnefnd til 12 verðlauna.

    Tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2026 voru kynntar í dag og er það söngleikurinn Ormstunga sem trónir á toppnum með alls tólf tilnefningar. Sýningin Óresteia kemur þar fast á eftir með tíu tilnefningar en Galdrakarlinn í Oz hlýtur sex.

    Ormstunga, sem byggð er á Gunnlaugs sögu ormstungu, er þar með sú sýning sem fær mesta viðurkenningu dómnefndar í ár. Meðal þeirra verka sem einnig vekja athygli eru Salka – ástin og dauðinn, Lína Langsokkur og Söngleikurinn Kabarett.

    Þjóðleikhúsið með flestar tilnefningar

    Þjóðleikhúsið hlýtur alls 36 tilnefningar fyrir sjö sýningar, þar á meðal samstarfsverkefni. Fyrir utan Ormstungu og Óresteiu fékk Lína Langsokkur flestar tilnefningar hússins eða fimm talsins.

    Söngleikurinn Kabarett, sem Leikhús ókunnuga fólksins setti upp í samstarfi við Þjóðleikhúsið, hlýtur þrjár tilnefningar. Sama gildir um Salka – ástin og dauðinn, sem Landnámssetrið í Borgarnesi setti upp með Þjóðleikhúsinu. Þá fær Íbúð 10B eina tilnefningu.

    Borgarleikhúsið fær 15 tilnefningar

    Borgarleikhúsið hlýtur alls 15 tilnefningar fyrir sex sýningar. Þar ber hæst Galdrakarlinn í Oz með sex tilnefningar, á meðan bæði Hamlet og Skammarþríhyrningurinn fá þrjár hvor.

    Aðrar sýningar sem hljóta tilnefningar eru Niflungahringurinn allur, Moulin Rouge! og óperan La bohème, sem sviðslistahópurinn Óður setti upp í samstarfi við Borgarleikhúsið.

    Fleiri leikhús og sviðslistahópar áberandi

    Tjarnarbíó hlýtur alls 13 tilnefningar og MurMur Productions fær átta. Þá hlýtur Íslenski dansflokkurinn fimm tilnefningar og Leikfélag Akureyrar eina.


    Helstu tilnefningar Grímuverðlaunanna 2026

    Sýning ársins

    • Ormstunga
    • Óresteia
    • Salka – ástin og dauðinn
    • Sérstæðan
    • Söngleikurinn Kabarett

    Barnasýning ársins

    • Engan asa Einar Áskell
    • Galdrakarlinn í Oz
    • Hreiðrið
    • Innblástur
    • Lína Langsokkur

    Leikrit ársins

    • Ormstunga – Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson
    • Óresteia – Benedict Andrews
    • Rómantísk gamanmynd – Sigurður Ámundason, Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko
    • Salka – ástin og dauðinn – Unnur Ösp Stefánsdóttir
    • Sæmundur fróði – Þórunn Guðmundsdóttir

    Leikstjóri ársins

    • Kolfinna Nikulásdóttir – Hamlet
    • Agnes Wild – Lína Langsokkur
    • Gísli Örn Garðarsson – Ormstunga
    • Benedict Andrews – Óresteia
    • Gréta Kristín Ómarsdóttir – Skammarþríhyrningurinn

    Leikkona í aðalhlutverki

    • Ásthildur Úa Sigurðardóttir – Óresteia
    • Birta Sólveig Söring Þórisdóttir – Lína Langsokkur
    • Ebba Katrín Finnsdóttir – Óresteia
    • Nína Dögg Filippusdóttir – Óresteia
    • Unnur Ösp Stefánsdóttir – Salka – ástin og dauðinn

    Leikari í aðalhlutverki

    • Atli Rafn Sigurðarson – Óresteia
    • Árni Pétur Guðjónsson – Skammarþríhyrningurinn
    • Elísabet Skagfjörð – Engan asa Einar Áskell
    • Jakob van Oosterhout – Ormstunga
    • Kristinn Óli S. Haraldsson – Ormstunga

    Söngvari ársins

    • Björk Níelsdóttir – Sæmundur fróði
    • Bryndís Guðjónsdóttir – La bohème
    • Jóna G. Kolbrúnardóttir – Carmen
    • Kristinn Óli S. Haraldsson – Ormstunga
    • Rán Ragnarsdóttir – Ormstunga

    Hvatningarverðlaun valnefndar

    Eftirtaldir aðilar hlutu Hvatningarverðlaun valnefndar í ár:

    • Barna- og ungmennastarf Borgarleikhússins
    • Dansverkstæðið
    • Improv Ísland
    • Leikhúslistakonur 50+
    • Stertabenda

    Valnefndin hrósaði sérstaklega framúrskarandi framlagi þeirra til íslensks sviðslistalífs, fjölbreytileika og nýsköpunar í menningu og listum.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!