Hrakhólar 12 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Hrakhólar 12

    Hrakhólar 12 er nýtt leikverk sem verður frumsýnt þann 27. apríl kl. 20.

    Halaleikhópurinn frumsýnir nýtt íslenskt leikrit sem meðlimir Halaleikhópsins hafa skapað saman undir leiðsögn Rúnars Guðbrandssonar leikstjóra og Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur, sviðshöfundar.

    Persónudrifin satíra með alvarlegum undirtón

    Verkið fjallar um íbúa fjölbýlishúss, ættingja þeirra og aðra óboðna gesti sem rápa inn og út, í óþökk Söndru umsjónarmanns fasteigna. Þegar Helena listakona flytur inn á móður sína tímabundið, bankar fortíðin upp á, – og nágrannar sem vantar ýmist egg eða leiðsögn í lífinu. Helena hefur lifað, upplifað, brunnið út og risið upp. Hún er eins og fuglinn Fönix, nema með betri húmor en verri svefn. Mun sveitastjórnin á Þórðarhöfn samþykka hugmynd hennar eða ætla þau að missa ferðamennina úr greipum sér? Hvað gerist þegar Sandra tilkynnir á húsfundi um ástand hússins og hvað verður um Ástu sem er alltaf að bíða en fær engan frið fyrir Hallgerði stundakennara með jógadýnu sem hefur lifað af fjögur krabbamein, ADHD og samband við fótboltamann. Nú eða Borghildi hjá Neytendasamtökunum sem vill hjálpa Sjonna bróður sínum, en hann vill enga hjálp og er í nöp við Silju sem er svo aumingjagóð og hleypir öllum inn, líka trúboðanum sem vill vísa íbúum leiðina heim, í gegnum dimman dal, óttist ei, þótt vasaljósið sé bilað.

    Miðasala hjá Halaleikhópnum
    Miðaverð: 3500kr
    Lengd: 2 tímar með hléi
    Hátún 12 – inngangur 3
    27. apríl – frumsýning
    30. apríl
    3. maí
    10. maí



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!