Back to Top
Sex í sveit | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Sex í sveit

    Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Sex í sveit í Samkomuhúsinu laugardaginn 1 .mars.

    Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Sex í sveit í Samkomuhúsinu lau. 1 .mars næstkomandi. Verkið Sex í sveit eftir Marc Camoletti er hefðbundinn gamanleikur með alls konar misskilningi, flækjum, lygum, framhjáhaldi og almennu fjöri. Valgeir Skagfjörð leikstýrir hjá LH að þessu sinni. 

    Sex í sveit fjallar um hjónin Benna og Þórunni sem fara í bústaðinn sinn í Eyjafirði. Hann var búinn að skipuleggja „stráka-helgi“ með besta vini sínum og reyndar viðhaldinu sínu líka á meðan Þórunn ætlaði að vera fyrir austan hjá mömmu sinni. Þegar Þórunn hins vegar kemst að því að Ragnar besti vinur Benna er á leiðinni snýst henni hugur og ákveður að vera um kyrrt í Eyjafirðinum. Það sem Benni hins vegar veit ekki er að Þórunn á líka viðhald og hún sér fram á að geta nýtt helgina með viðhaldinu sínu. Þegar svo veisluþjónustan mætir á svæðið fer allt í háaloft og misskilningurinn og lygarnar aukast svo um munar. Svo ekki sé minnst á þegar unga viðhaldið hans Benna mætir.

    Hver bauð annars hverjum í mat þessa helgina? Hver heldur við hvern? Hver er kokkurinn? Hver eldar matinn? Fara þau í alvöru í leikinn „Sex í sveit“? Hvert er markmið þess leiks?

    Þetta kemur allt í ljós á fjölum Samkomuhússins á Húsavík, 1. mars en þá er einmitt  frumsýningin. Önnur sýning þriðjudaginn 4. mars klukkan 20:00 og svo 7., 8. og 9. mars.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!