Sagan af Gnýpu
Umskiptingar bjóða ykkur velkomin í undraheim Töfrabókanna.Þegar bókin er opnuð birtist heillandi heimur og sagan lifnar við.Töfrabækurnar er brúðuleikhús fyrir yngstu kynslóðina.Sýnt er í leikhúsinu á Möðruvöllum í Hörgárdal á hverjum sunnudegi kl 14:00
Fyrsta sagan er Sagan af Gýpu.
Gýpa er með eindæmum matgráðug og mesta furða að hún hafi ekki verið búin að éta heimilisfólk út á gaddinn. Þegar matinn þrýtur étur hún askinn sinn, karl og kerlingu í kotinu og kúna Kreppilhyrnu. Síðan heldur hún af stað til að leita að meiri mat. Hver skyldi vera svo ólánsamur að verða á vegi hennar?
Eftir sýningar verður hægt að kaupa kaffi og kruðerí, föndra svolítið og jafnvel sjá hvernig hægt er að gera sína eigin útgáfu af Gýpu.
Leikstjóri: Jenný Lára Arnórsdóttir
Leikarar: Jónína Björt Gunnarsdóttir og Margrét Sverrisdóttir
Framleiðsla: Fanney Valsdóttir
Brúðuhönnun: Margrét Sverrisdóttir
Höfundar tónlistar: Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir