Nashyrningarnir í Þjóðleikhúsinu
- Eitt frægasta verk hins heimsþekkta fransk-rúmenska leikskálds Ionescos
- Stór hópur leikara tekur þátt í sýningunn: Gói, Hilmir Snær, Ilmur Kristjáns og Arnmundur Backman í aðalhlutverkum.
- Kötturinn Rúfus í sinni fyrstu burðarrullu í Þjóðleikhúsinu
Hversdagslegt lífið í litlum bæ umturnast þegar íbúarnir taka að breytast í nashyrninga, hver af öðrum. Allir nema hlédrægur skrifstofumaður sem er gagnrýndur af vinnufélögunum fyrir óstundvísi, óreglu og frjálslegt líferni. Hvers vegna er það einmitt bara hann sem reynir að spyrna við fótum og halda í mennskuna?
Áhorfendum verður nú boðið upp á nýja, ferska og fjöruga útfærslu Benedikts Erlingssonar og leikhópsins á þessu skemmtilega leikriti. Nashyrningarnir fóru eins og eldur í sinu um leikhús í Evrópu strax eftir að leikritið var frumflutt árið 1959, og var verkið leikið í Þjóðleikhúsinu strax árið 1961. Verkið er sett upp reglulega víða um heim enda spyr það enn áleitinna og ögrandi spurninga.
Jaðarhugmynd verður að stórri hugmynd
Benedikt Erlingsson hefur á undanförnum árum sett upp margar einstaklega eftirminnilegar sýningar og hlotið ótal verðlaun fyrir verk sín. Meðal ástsælla sýninga sem hann hefur staðið að eru Ormstunga, Jeppi á fjalli, Íslandsklukkan, Húsið, Súper og Jesú litli. Auk þess sem hann hefur verið atkvæðamikill sem kvikmyndaleikstjóri. Eftir hann liggja myndir eins og Hross í oss og Kona fer í stríð sem bera höfundareinkennum hans fagurt vitni.
„Á leiksviðinu sem stundum hefur verið kallað vígvöllur hugmynda og hugsjóna setjum við upp leikrit um hvernig lítil hugmynd verður að stórri hugmynd sem umbreytir heilu samfélagi. Hvernig jaðarhugmynd smitast sem vírus og verður að lokum að meginhugsjón heillar þjóðar. Eitthvað sem i raun og veru er alltaf að gerast á hverjum degi. Alls staðar.” segir Benedikt.
Leikarar
Arnmundur Ernst Backman, Guðjón Davíð Karlsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ilmur Kristjánsdóttir, Pálmi Gestsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Örn Árnason, Flemming Viðar Valmundsson og kötturinn Rúfus.
Listrænir stjórnendur
Leikstjórn
Benedikt Erlingsson
Leikmynd
Börkur Jónsson
Búningar
Filippía I. Elísdóttir
Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlist
Davíð Þór Jónsson
Hljóðhönnun
Kristján Sigmundur Einarsson
Þýðandi
Guðrún Vilmundardóttir