Möguleikhúsið sýnir barnaleikritið Prumpuhóllinn
Möguleikhúsið sýnir barnaleikritið Prumpuhóllinn eftir Þorvald Þorsteinsson í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi sunnudaginn 26. apríl kl. 14:00
Hulda er nýflutt úr borginni og upp í sveit. Þegar hún fer í feluleik með Halla bróður sínum vill ekki betur til en hún villist og ratar ekki heim. Henni líst ekkert á þetta umhverfi þar sem allt er framandi; lyktin er náttúrufýla, grasið stingur og það eru pöddur út um allt!
Við sérkennilegan hól sem gefur frá sér dularfull hljóð hittir hún Steina. Hann er kátur tröllastrákur í skrítnum fötum sem segir Huldu að hóllinn sé í raun pabbi sinn. Hann hafi lent í sólargeisla og orðið að steini eftir að hafa borðað rosalega mikinn hundasúrugraut. En hundasúrugrauturinn varð ekki að steini. Ónei, hann ólgar enn svo drynur í hólnum. Og fýlan..maður lifandi!
Leikstjórn Prumpuhólsins er í höndum Péturs Eggerz. Leikmynd og búninga hannaði Messíana Tómasdóttir. Tónlistin er eftir Guðna Franzson. Leikarar eru Pétur Eggerz og Anna Brynja Baldursdóttir.
Sýningin er ætluð áhorfendum á aldrinum 2ja til 10 ára og tekur 45 mínútur í flutningi.
Miðaverð er kr. 2.500 og tekið er á móti miðapöntunum í s. 8971813 og á moguleikhusid@moguleikhusid.is
AÐEINS ER UM ÞESSA EINU SÝNINGU AÐ RÆÐA!