Lokaæfing í Tjarnarbíói
Síðastliðinn 4. október var leikverkið Lokaæfing eftir Svövu Jakobsdóttur í uppsetningu Háaloftsins frumsýnt í Tjarnarbíói. Verkið segir frá hjónum á fertugsaldri sem loka sig af vikum saman niðri í heimatilbúnu neðanjarðarbyrgi. Fullkomin einangrun afhjúpar tilveru þeirra og smám saman nást út mörk raunveru og ímyndunar. Hvað eru þau að æfa? Margrómað átakaverk upp á líf og dauða.
Leikstjórn: Tinna Hrafnsdóttir
Leikarar: Þorsteinn Bachmann, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Kristín Pétursdóttir
Aðstoðarleikstjórn: Arnmundur Ernst Backman
Leikmynd: Stígur Steinþórsson
Búningar: Una Stígsdóttir
Tónlist: Sveinn Geirsson
Lýsing: Arnþór Þórsteinsson
Uppsetning Háaloftsins á Lokaæfingu er hluti af Lestrarhátíð Bókmenntaborgar 2015 sem í ár er helguð höfundinum.
Svava Jakobsdóttir (1930-2004), leikskáld og fyrrverandi alþingismaður, var einn fremsti rithöfundur Íslendinga á 20. öld. Hún var auk þess ötul baráttukona fyrir jafnrétti og hafði mikil áhrif með sögum sínum, leikritum og fræðiskrifum. Lokaæfing er eitt þekktasta leikverk Svövu og var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1983.
Leikhópurinn Háaloftið var stofnaður af leikurunum Tinnu Hrafnsdóttur og Sveini Geirssyni árið 2011. Fyrri sýningar á vegum Háaloftsins eru Hrekkjusvín árið 2011 í Gamla bíó, Útundan árið 2014 í Tjarnarbíó og Ekki hætta að anda árið 2015 í Borgarleikhúsi.