Leitin að jólunum – Yfir 300 uppseldar sýningar
312. sýningin af Leitinni að jólunum verður sýnd þann 17. desember. Sýningin hefur gengið í 12 ár alltaf á aðventunni og er þetta leiksýning fyrir fjölskylduna þar sem er farið í skoðunarferð um leikhúsið. Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og þessi fjörugi hópur leiðir börnin með leik og söng um leikhúsið. Börnin ferðast inn í ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin í gamla daga og á okkar tímum.
Raunar: Ólafur Egill Egilsson / Hallgrímur Ólafsson
Reyndar: Esther Talía Casey
Móðir: Edda Arnljótsdóttir
Strákur: Grettir Valsson / Egill Breki Sigurpálsson
Stúlka: Thea Snæfríður Kristjánsdóttir / Ísabella Rós Þorsteinsdóttir / Svava Sól Matthíasdóttir
Hljómar: Kjartan Valdimarsson
Breimar: Darri Mikaelsson