Íó – Undirheimaferð stúlku og hrafns
Föstudaginn 29. október kl. 15:00 frumsýnir Gára Hengó í samstarfi við Tjarnarbíó nýtt og ævintýralegt verk ætlað börnum á grunnskólaaldri.
Hafrún er ákveðin stelpa með mikið hrokkið hár. Hún elskar að ráða í drauma, lesa á hvolfi og fylgjast með tunglinu en í nótt getur hún ekki sofið. Hún saknar ömmu sinnar sárt sem er nýfarin á fund stjarnanna. Skyndilega flýgur hvítur hrafn inn í herbergið á ógnarhraða. Hafrún nefnir hann Íó. Saman leggja þau af stað í stórfenglegt ævintýri. Þau fljúga útum glugga í átt að tungli, ganga um sofandi sand sem lifnar við, lenda í táraflóði og ferðast neðansjávar í leit að ömmu.
Íó er ljóðræn sýning um sorgarferli. Sýningin er sjónræn sviðsetning á innra ferðalagi barns. Á ferðalaginu takast Hafrún og Íó á við mögnuð öfl sem búa innra með okkur og eru jafn ómissandi og tunglið sem lýsir okkur nóttina. Íó er þroskasaga um hugrekki, vináttu, missi og leit að jafnvægi milli ljóss og myrkurs.
Höfundur og listrænn stjórnandi: Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
Leikstjóri: Aude Busson
Leikmynda-, búninga- og brúðuhönnun: Sigríður Sunna Reynisdóttir
Brúðugerð og brúðuleikari: Aldís Davíðsdóttir
Leikkona: Gríma Kristjánsdóttir
Tónlist: Ásta Fanney Sigurðardóttir
Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson
Textílhönnun og búningagerð: Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri: Anna Rut Bjarnadóttir
Plakat og myndband: Una Lorenzen