Gulleyjan

Þegar Jim Hawkins leggur í svaðilför til að kanna heimsins höf er hann spenntur fyrir komandi ævintýrum, en ekki er allt sem sýnist. Skyldu sjóræningjar gera vart við sig? Er laumufarþegi um borð? Hversu skrýtinn er furðufuglinn sem hann hittir?
Gulleyjan er stórskemmtilegur og bráðfyndinn söngleikur sem nær til allra aldurshópa! Með sínum æsispennandi söguþræði, glæsilegu dansatriðum og fallegu lögum heldur Gulleyjan áhorfendunum á tánum. Söngleikurinn, sem er byggður á sígildu ævintýrasögunni Treasure Island eftir Robert Louis Stevenson, er eftir þá Sigga Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson og tónlistina samdi Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Leikstjórn er í höndum meistarans Gunnars Björns Guðmundssonar, danshöfundur er Aníta Rós Þorsteinsdóttir og söngstjóri er Gunnlaugur Bjarnason.
Hvað er Góðgerðarsýning? Allur ágóði af miðasölu á góðgerðarsýninguna mun renna til The Ocean Cleanup, sem eru Hollensk samtök sem hafa það að markmiði að tæma höfin af plasti. Þar sem Gulleyjan fjallar um sjóræningja á hafi úti sem væru eflaust óánægðir með þá þróun sem hefur orðið í plastmengun finnst okkur við hæfi að nýta góðgerðarsýninguna í að gera þeim til geðs.