Fasteignamartröðin tekst á við frumskóg húsnæðismarkaðarins | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Fasteignamartröðin tekst á við frumskóg húsnæðismarkaðarins

    Leikfélag Akureyrar frumsýnir Fasteignamartröðina 9. október, grátbroslegt samtímaverk um fyrstu fasteignakaup og frumskóg húsnæðismarkaðarins.

    Leikfélag Akureyrar frumsýnir Fasteignamartröðina 9. október, grátbroslegt samtímaverk um unga konu sem leggur af stað í leit að sinni fyrstu íbúð. Verkið er eftir litháenska leikskáldið Gabrielė Labanauskaitė og leikstjórn og þýðing eru í höndum Adolfs Smára Unnarssonar.

    Eftir óvænt sambandsslit þarf Arnrún að finna sér nýtt þak yfir höfuðið. Hún getur ekki flutt aftur í foreldrahús og leigumarkaðurinn heillar lítið, svo niðurstaðan verður að reyna að kaupa fyrstu íbúðina.

    Þar með hefst ferðalag um húsnæðismarkaðinn og heim bankastarfsmanna, fasteignasala og lánardrottna. Í Fasteignamartröðinni er fasteignakaupum ungs fólks lýst með grátbroslegum og fáránlegum hætti og verkið sækir meðal annars í absúrd og kómík.

    Gabrielė Labanauskaitė er litháenskt leikskáld og var verkið valið besta erlenda leikritið á stærstu leikritunarhátíð Þýskalands árið 2021.

    Urður Bergsdóttir í hlutverki Arnrúnar

    Urður Bergsdóttir fer með hlutverk Arnrúnar. Aðrir leikarar sýningarinnar eru Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jökull Smári Jakobsson og Vigdís Halla Birgisdóttir.

    Adolf Smári Unnarsson leikstýrir sýningunni og þýðir verkið. Brynja Björnsdóttir hannar leikmynd og búninga, Jóhannes Damian R. Patreksson semur tónlist og Gunnar Sigurbjörnsson sér um hljóðhönnun. Ljósahönnun er í höndum Fjölnis Gíslasonar, Júlía Gunnarsdóttir er dramatúrg og Harpa Birgisdóttir sér um hár og förðun.

    Fasteignamartröðin verður frumsýnd 9. október og samkvæmt dagskrá Menningarfélags Akureyrar eru sýningar fyrirhugaðar í október og nóvember.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!