DON GIOVANNI
DON GIOVANNI eftir Wolfgang Amadeus Mozart – FRUMSÝND 27.febrúar 2016
Mozart samdi óperuna Don Giovanni á u.þ.b. mánuði en hún var frumsýnd í Prag árið 1787 og hlaut afar góðar viðtökur.Tónlistin í óperunni er falleg og ríkuleg og er þessi ópera af mörgum talin bera af í fegurð tónmáls. Söguþráðurinn hverfist um hinn glæsilega flagara Don Giovanni sem leggur land undir fót, heillar og tælir konur um gjörvalla Evrópu en með honum í för er þjónn hans Leporello. Ógæfan dynur yfir þegar Don Giovanni fremur voðaverk og má segja að þá leysist ill öfl úr læðingi og glíman við samviskuna hefjist fyrir alvöru.
Óperan er í tveimur þáttum og tekur 3 klukkustundir í flutningi með hléi.
Hlutverkaskipan:
Don Giovanni – Oddur Arnþór Jónsson
Leporello – Tomislav Lavoie
Donna Anna – Hallveig Rúnarsdóttir
Don Ottavio – Elmar Gilbertsson
Commendatore – Jóhann Smári Sævarsson
Donna Elvira – Hanna Dóra Sturludóttir
Zerlina – Þóra Einarsdóttir
Masetto – Ágúst Ólafsson
Kór og hljómsveit Íslensku óperunnar.
Listrænir stjórnendur:
Benjamin Levy – hljómsveitarstjóri
Kolbrún Halldórsdóttir – leikstjóri
Snorri Freyr Hilmarsson – höfundur leikmyndar
María Ólafsdóttir – höfundur búninga
Björn Bergsteinn Guðmundsson – ljósahönnuður
Sýningardagar:
Laugardagur 27.febrúar
Laugardagur 5.mars
Föstudagur 11.mars
Sunnudagur 13.mars