Djöflaeyjan
Æfingar eru hafnar á nýjum söngleik, sem er byggður á metsölubókum Einars Kárasonar um drauma, sorgir og sigra stórfjölskyldu Karólínu spákonu, og hið skrautlega mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur á eftirstríðsárunum. Djöflaeyjan gerist á miklum umbrotatímum í íslensku samfélagi og er saga um fjölskylduátök, vináttu, ástir, vonir og þrár.
Leikstjórn í er höndum Baltasars Kormáks og Atla Rafns Sigurðssonar.
Frumsýning er 18.mars 2016 á Stóra sviðinu.
Þjóðleikhúsið býður áhorfendum upp á umræður eftir 6. sýningu verka, með þátttöku leikara og listrænna aðstandenda. Umræðurnar taka um 20 mínútur og fara fram á sviði að sýningu lokinni.