Þöglar byltingar er ögrandi einþáttungur um óhamingjusamt fólk sem rifjar upp líf sitt á brúðkaupsdaginn. Við köfum inn í og undir þögnina sem einkennir samband þeirra á meðan fimm ára barnið þeirra kíkir um spennt fyrir komandi hátíð. Leikritið er flutt á íslensku með enskum texta.
Sérstakar þakkir: Annalísa Hermannsdóttir, Guðmundur Felixson, Guðbjörg Bergmann Skarphéðinsdóttir, Natalía Gunnlaugsdóttir, Sverrir Gauti Svavarsson, Ungleikur, Móeiður Helgadóttir og margir fleiri
Leiksýningin Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, sem er byggð á bókum Elísabetar Jökulsdóttur, í leikstjórn Björns Thors og sviðsetningu Þjóðleikhússins var valin sýning ársins þegar Íslensku sviðslistaverðlaunin voru afhent í 22. sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu fyrr í kvöld.
Níu sýningar skiptu á milli sín verðlaunum kvöldsins sem voru veitt í 19 flokkum. Flest verðlaun fengu leiksýningarnar Saknaðarilmur og Ást Fedru, eða fern verðlaun hvor sýning. Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands hlaut Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona.
Sýning ársins: Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikrit ársins: Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Hvatningarverðlaun valnefndar fyrir framúrskarandi nýbreytni í sviðslistum: Fúsi – aldur og fyrri störf. Einstök nýbreytni í leikhúsi þar sem fatlaður maður segir sögu sína með leiklistina, sem hann hefur helgað líf sitt, að vopni. Fúsi er verðugur fulltrúi listamanna sem eru án landamæra og hefur hann sett líf þeirra og list í kastljósið með sýningunni. Heiðurinn er bæði Fúsa sjálfs og leikstjórans Agnars Jóns, en saman feta þeir óhefðbundna leið til að segja brothætta sögu Fúsa á áhrifaríkan og einlægan hátt.
Barnasýning ársins: Hollvættir á heiði eftir Þór Túliníus í sviðsetningu Leikhópsins Svipir í samstarfi við Sláturhúsið.
Leikstjóri ársins: Agnar Jón Egilsson fyrir sýninguna Fúsi – aldur og fyrri störf í sviðsetningu Sviðslistahópsins Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra
Leikkona ársins í aðalhlutverki: Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Saknaðarilmur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikari ársins í aðalhlutverki: Sigurður Þór Óskarsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Deleríum búbónis í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikkona ársins í aukahlutverki: Vigdís Hrefna Pálsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Mútta Courage og börnin í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikari ársins í aukahlutverki: Þröstur Leó Gunnarsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Ást Fedru í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Dansari ársins: Elín Signý W. Ragnarsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni The Simple Act of Letting go í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Söngvari ársins: Heiða Árnadóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Mörsugur í sviðsetningu Þrjátíu fingurgóma í samstarfi við Óperudaga
Leikmynd ársins: Guðný Hrund Sigurðardóttir, Hákon Pálsson og Rósa Ómarsdóttir fyrir sýninguna Molta í sviðsetningu Rósu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins í samstarfi við Gerðarsafn
Búningar ársins: Filippía I. Elísdóttir fyrir sýninguna Ást Fedru í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Tónlist ársins: Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson fyrir sýninguna Saknaðarilmur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Hljóðmynd ársins: Kristján Sigmundur Einarsson fyrir sýninguna Ást Fedru í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Danshöfundur ársins: Rósa Ómarsdóttir fyrir sýninguna Molta í sviðsetningu Rósu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins í samstarfi við Gerðarsafn
Dans- og sviðshreyfingar ársins: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir fyrir sýninguna Deleríum búbónis í sviðsetningu Borgarleikhússins
Tilnefningar til Grímuverðlaunanna má sjá hér að neðan:
Sýning ársins 2024
Félagsskapur með sjálfum mér
eftir Gunnar Smára Jóhannesson
Sviðsetning: Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó
Fúsi – aldur og fyrri störf
eftir Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson
Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Monochrome
í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra
Molta
eftir Rósu Ómarsdóttur
Sviðsetning: Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn
Saknaðarilmur
eftir Unni Ösp Stefánsdóttur
leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Stroke
eftir Virginiu Gillard, Andreu Elínu Vilhjálmsdóttur, Köru Hergils Valdimarsdóttur og
Sæmund Andrésson
Sviðsetning: Trigger warning í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó
Leikrit ársins 2024
Félagsskapur með sjálfum mér
eftir Gunnar Smára Jóhannesson
Verkið
eftir Jón Gnarr
Með Guð í vasanum
eftir Maríu Reyndal
Lúna
eftir Tyrfing Tyrfingsson
Saknaðarilmur
eftir Unni Ösp Stefánsdóttur
leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur
Hvatningarverðlaun valnefndar 2024 fyrir framúrskarandi nýbreytni í sviðslistum
Fúsi – aldur og fyrri störf
Einstök nýbreytni í leikhúsi þar sem fatlaður maður segir sögu sína með leiklistina, sem hann hefur helgað líf sitt, að vopni. Fúsi er verðugur fulltrúi listamanna sem eru án landamæra og hefur hann sett líf þeirra og list í kastljósið með sýningunni. Heiðurinn er bæði Fúsa sjálfs og leikstjórans Agnars Jóns, en saman feta þeir óhefðbundna leið til að segja brothætta sögu Fúsa á áhrifaríkan og einlægan hátt.
House of Revolution
Áríðandi og löngu tímabær vettvangur fyrir listamenn af jaðri íslensks samfélags, sem til þessa hafa haft lítinn sem engan aðgang að leikhúsunum. Að frumkvæði R.E.C. Arts hafa þau í fjórgang fyllt Þjóðleikhússkjallarann, af fólki, sameiningaranda og röddum fólks sem hér fá að segja sínar sögur og gera tilraunir með sviðslistaformið. Hér er á ferðinni bæði mikilsverð, gagnkvæm inngilding og von um litríka, fjölradda framtíð á sviðum landsins.
Stefan Sand tónskáld og kórstjóri
Stefan hefur í sínu frumkvöðlastarfi einbeitt sér að því að ná til nýrra áheyrenda. Einstaklega vönduð sviðsetning á verkinu Look at the Music er gott dæmi um það. Þar upphefur hann döff ljóðlist, semur út frá henni tilkomumikið kórverk sem bæði er raddsungið og táknað og brúar þar með heima heyrandi og döff fólks. Verkið teygir sig út fyrir skilning tungumálanna og inn á svið bæði tónrænnar og sjónrænnar upplifunar svo að öll fái notið.
Stroke
Nýjung í heimildaleikhúsi þar sem myndefni og hljóðupptökur, í bland við hefðbundna trúðatækni, eru nýtt á áhrifamikinn hátt til að segja frá reynslu leikkonunnar Virginiu Gillard og lífi eftir heilablæðingu. Með óvenju mikilli berskjöldun tekst höfundum að gera því skil með list trúðsins Cookie, alteregoi leikkonunnar, hvernig líf okkar allra getur tekið óvænta stefnu í kjölfar sársaukafullra atburða sem enginn fær ráðið við. Sviðsverk sem ber vitni um djörfung í nálgun á viðkvæmu viðfangsefni .
Þórunn Guðmundsdóttir tónskáld
Þórunn hefur undanfarna áratugi unnið ómetanlegt brautryðjandastarf sem óperutónskáld, en hún hefur af einstakri ástríðu og metnaði frumsamið fjölda ópera og söngleikja ásamt librettóum. Einnig hefur hún verið órög að taka fjárhagslega áhættu með því að framleiða sjálf sýningar á þessum frumfluttu óperum, án teljandi utanaðkomandi styrkja. Ekkert tónskáld á landinu hefur hin síðari ár, verið svo afkastamikið í að frumsemja og sviðsetja óperur og eins og Þórunn.
Barnasýning ársins 2024
Fíasól gefst aldrei upp
leikgerð Maríönnu Clöru Lúthersdóttur og Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur
byggð á verkum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Frost
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Hollvættir á heiði
eftir Þór Túliníus
Sviðsetning: Leikhópurinn Svipir í samstarfi við Sláturhúsið
Kan(l)ínudans
eftir Leevi Mettinen og Sóleyju Ólafsdóttur
Sviðsetning: Leevi Mettinen og Sóley Ólafsdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó og Unga festival
Ævintýraóperan Hans og Gréta
Sviðsetning: Kammeróperan í samstarfi við Tjarnarbíó
Leikstjóri ársins 2024
Agnar Jón Egilsson
Fúsi – aldur og fyrri störf
Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra
Björn Thors
Saknaðarilmur
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
María Reyndal
Með Guð í vasanum
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Stefán Jónsson
Lúna
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Tómas Helgi Baldursson
Félagsskapur með sjálfum mér
Sviðsetning: Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó
Leikkona ársins 2024 í aðalhlutverki
Ebba Katrín Finnsdóttir
Orð gegn orði
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Ilmur Kristjánsdóttir
Ekki málið
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Með Guð í vasanum
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Unnur Ösp Stefánsdóttir
Saknaðarilmur
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Virginia Gillard
Stroke
Sviðsetning: Trigger warning í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó
Leikari ársins 2024 í aðalhlutverki
Björn Thors
Ekki málið
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Gunnar Smári Jóhannesson
Félagsskapur með sjálfum mér
Sviðsetning: Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó
Hilmir Snær Guðnason
Lúna
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Kjartan Darri Kristjánsson
Frost
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Sigurður Þór Óskarsson
Deleríum Búbónis
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Leikkona ársins 2024 í aukahlutverki
Kristbjörg Kjeld
Með Guð í vasanum
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Sólveig Arnarsdóttir
Með Guð í vasanum
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Vigdís Halla Birgisdóttir
Hollvættir á heiði
Sviðsetning: Leikhópurinn Svipir í samstarfi við Sláturhúsið
Vigdís Hrefna Pálsdóttir
Mútta Courage og börnin
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
X
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Leikari ársins 2024 í aukahlutverki
Agnar Jón Egilsson
Fúsi – aldur og fyrri störf
Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra
Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur
Ásta Jónína Arnardóttir
Ást Fedru
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Ásta Jónína Arnardóttir
Edda
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Ólafur Ágúst Stefánsson
Piparfólkið
Sviðsetning: Sviðslistahópurinn DÍÓ í samstarfi við MurMur productions
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Saknaðarilmur
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Tónlist ársins 2024
Egill Andrason og Salka Valsdóttir
Edda
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Nicolai Johansen
Molta
Sviðsetning: Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn
Valgeir Sigurðsson og Helgi Hrafn Jónsson
Mútta Courage og börnin
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir
Mörsugur
Sviðsetning: Þrjátíu fingurgómar í samstarfi við Óperudaga
Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson
Saknaðarilmur
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Hljóðmynd ársins 2024
Kristján Sigmundur Einarsson
Ást Fedru
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Ronja Jóhannsdóttir
Kannibalen
Sviðsetning: Spotlight í samstarfi við Tjarnarbíó
Ísidór Jökull Bjarnason
Lúna
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Friðrik Margrétar- Guðmundsson
SUND
Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Blautir búkar í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó
Þorbjörn Steingrímsson
X
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Danshöfundur ársins 2024
Snædís Lilja Ingadóttir og Valgerður Rúnarsdóttir
Árstíðirnar
Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur
Bára Sigfúsdóttir og Orfee Schuijt
Fabulation
Sviðsetning: Bára Sigfúsdóttir og Orfee Schuijt í samstarfi við Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival
Rósa Ómarsdóttir
Molta
Sviðsetninga: Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn
Ólöf Ingólfsdóttir
Sjö ljóð úr óskrifaðri ljóðabók
Sviðsetning: Alltaf nóg slf í samstarfi við Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival
Tom Weinberger
The Simple Act of Letting go
Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn
Dans- og sviðshreyfingar ársins 2024
Seiðr og Ernesto Camilo Aldazábal Valdés
Ást Fedru
Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Deleríum Búbónis
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Valgerður Rúnarsdóttir
Fíasól gefst aldrei upp
Sviðsetning: Borgarleikhúsið
Aðalbjörg Árnadóttir og Ylfa Ösp Áskelsdóttir
Piparfólkið
Sviðsetning: Sviðslistahópurinn DÍÓ í samstarfi við MurMur productions
Andrean Sigurgeirsson í samstarfi við við Birni Jón Sigurðsson, Ernu Guðrúnu Fritzdóttur, Eygló Hilmarsdóttur, Kjartan Darra Kristjánsson og Þóreyju Birgisdóttur
SUND
Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Blautir búkar í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó
Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Bergur Þór tekur við af Mörtu Nordal sem hefur gengt starfinu síðustu í sex árin.
Bergur Þór útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1995. Hann hefur verið fastráðinn við Borgarleikhúsið frá árinu 2000 og hefur leikið þar fjölmörg hlutverk. Hann hefur getið sér gott orð sem leikstjóri en á meðal stórsýninga sem hann hefur leikstýrt eru Mary Poppins, Deleríum búbónis, Billy Elliot og Matthildur. Hann hefur einnig starfað í kvikmyndum og sjónvarpi og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín.
„Það er mikill heiður og viðurkenning að vera treyst fyrir svo merkri og mikilvægri menningarstofnun sem L.A. er. Ég tek við leikhúsi í toppstandi eftir Mörtu Nordal, hef átt í frábærum samskiptum við verðandi samstarfsfólk mitt hjá MAK og finn til mikillar eftirvæntingar fyrir því sem framundan er. Akureyri er yndislegur, fallegur og spennandi bær. Ég hlakka til að flytja norður og setja upp skemmtilegar, áríðandi og lifandi leiksýningar. Nú verður gaman,“ segir Bergur Þór.
Eva Hrund Einarsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar segir mikinn feng fyrir Menningarfélagið að fá Berg til starfa. „Hann kemur með mikla þekkingu og reynslu af starfi leikhúsa og hefur verið afar farsæll í sínum störfum. Ég hlakka mikið til samstarfsins og að sjá Berg í nýju hlutverki hér fyrir norðan,“ segir Eva Hrund.
Þjóðleikhúsið hlýtur alls 29 tilnefningar til Grímunnar að þessu sinni. Saknaðarilmur er sú sýning sem hlýtur flestar tilnefningar til Grímunnar þetta árið eða alls 8 tilnefningar og hún er tilnefnd sem sýning ársins. Frost er tilnefnd sem barnasýning ársins og hlýtur fjórar tilnefningar. Ást Fedru hlýtur sex tilnefningar. Þá hljóta Edda, og Ekki málið tvær tilnefningar, Mútta Courage þrjár auk þess sem Ebba Katrín Finnsdóttir er tilnefnd sem leikkona ársins fyrir leik sinn í Orð gegn orði. Verkið eftir Jón Gnarr er tilnefnt sem leikverk ársins og Óperan Póst Jón hlýtur eina tilnefningu.
Þessi glæsilega uppskera kemur í kjölfar eins aðsóknarmesta vors í Þjóðleikhúsinu í manna minnum. Sýningar í Þjóðleikhúsinu hafa gengið einstaklega vel á þessu ári og þrjár sýningar fagna fimmtugustu uppseldu sýningunni nú í maí. Auk Frosts eru þrjár gríðarlega vinsælar en mjög ólíkar sýningar í sýningu en þetta eru Saknaðarilmur, Orð gegn orði og Á rauðu ljósi en sala á sýningar næsta haust er hafin á allar þessar vinsælu sýningarnar.
Nú er allt að fyllast á sýningar vorsins, uppselt á allar sýningar á Saknaðarilmi þar sem Unnur Ösp Stefánsdóttir sýnir stórleik. Ekki er frammistaða Ebbu Katrínar Finnsdóttiur síðri í Orð gegn orði en sýningin var færð á Stóra sviðið eftir páska og hefur verið fullt út úr dyrum. Nokkuð langt er síðan uppselt var orðið uppselt á allar sýningar þessa leikárs á Á rauðu ljósi – en nú í vikunni hófst sala á sýningar haustins á þessum vinsæla einleik. Auk þess er sala hafin á sýningar á Frosti næsta haust, en nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þessa einstöku fjölskylduskemmtun þetta vorið.
Elly er komin aftur! Í takmarkaðan tíma stígur Katrín Halldóra aftur á Stóra sviðið sem Elly Vilhjálms í rómaðri sýningu Gísla Arnar Garðarssonar eftir handriti Gísla og Ólafs Egils Egilssonar. Sýningin sló á sínum tíma öll met og naut fádæma vinsælda. Nú snýr Elly aftur vegna fjölda áskorana!
Hún bjó yfir óræðri dulúð og töfraði áhorfendur með söng sínum og leiftrandi persónuleika; túlkunin hógvær og ígrunduð, röddin silkimjúk og hlý. Líf Ellyjar varð stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti lítið um að svara því hún var dul og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna. Í þessari mögnuðu sýningu fetar Katrín Halldóra í fótspor einnar dáðustu söngkonu þjóðarinnar og syngur sig inn í hjörtu áhorfenda sem aldrei fyrr.
Sýningin Orð gegn orði hefur heldur betur hrifið leikhúsgesti. Í ljósi mikillar eftirspurnar var ákveðið að færa sýninguna á Stóra sviðið og á morgun, föstudaginn 5. apríl er komið að fyrstu sýningunni þar. Orð gegn orði er í leikstjórn Þóru Karítasar Árnadóttur og óhætt er að segja að sýningin hafi heillað leikhúsgesti. Leikur Ebbu Katrínar Finnsdóttur hefur fengið mikið lof frá gagnrýnendum og vakið sterk viðbrögð áhorfenda sem hafa ekki sparað stóru orðin.
Þegar er orðið uppselt út apríl en sýningar í maí eru komnar í sölu
Sýningin hefur vakið einstaklega sterk viðbrögð leikhúsgesta
Veitingasala verður opin að sýningu lokinni Einleikurinn hefur hreyft rækilega við áhorfendum og fjöldi óska hefur borist um umræður í kjölfar sýninga. Starfsfólk leikhússins hefur orðið þess áskynja að gestir hafi mikla þörf til þess að ræða upplifun sína. Til þess að mæta því verður gestarými opið eftir sýningar og leikhúsgestum gefst kostur á að njóta veitinga og spjalla.
Orð gegn orði (Prima Facie) er margverðlaunað, nýtt verk sem sló í gegn á West End og Broadway, eftir að hafa unnið til leikritunarverðlauna ástralska rithöfundasambandsins. Verkið hlaut Olivier-verðlaunin árið 2023, auk þess sem sýningin hlaut fjölda tilnefninga til Olivier-verðlaunanna og Tony-verðlaunanna.
Eitthvað verður að breytast! Tessa er ungur og metnaðarfullur lögmaður, hámenntuð og eitursnjöll, sem hefur tekist að klífa hratt upp metorðastigann. Hún vinnur hvert málið á fætur öðru, með framúrskarandi þekkingu sinni á lagabókstafnum, ver sakborninga af fimi og prófar vitni með úthugsuðum spurningum. Skyndilega verður ófyrirsjáanlegur atburður í einkalífi hennar til þess að allt sem virtist svo borðleggjandi sýnist ekki eins einfalt og skýrt og áður, og hún neyðist til að taka hugmyndir sínar og viðhorf til gagngerrar endurskoðunar.
Í verkinu er tekist á við ágengar spurningar um feðraveldið, réttarkerfið, kynferðisbrotamál, siðgæði, sekt og sönnunarbyrði. Hvaða vægi hafa tilfinningar og réttlætiskennd í flóknum málum, og hvenær er sekt nægilega sönnuð? Ebba Katrín Finnsdóttir leikur þennan magnaða verðlaunaeinleik.
Spamalot er algjörlega epískur gaman söngleikur sem tekur sig alls ekki of hátíðlega á sama tîma og hann er risastór og alveg fáránlega fyndinn og skemmtilegur.
Leikritinu er ástúðlega stolið þráðbeint úr hinni stórkostlegu mynd Monty Python um hinn heilaga gral. Verkið er enda skrifað af einum meðlimi hópsins Eric Idle. Með músík eftir hann og John De Prez.
Þessi óborganlega söngleikjaperla kemur stöðugt á óvart með gáskafullum húmor og óvæntum uppákomum, og er hrein snilld fyrir þá sem þyrstir í skemmtun. Með rosalegri blöndu af ódauðlegum bröndurum Monty Python sem fær jafnvel mesta svartsýnispúka til að brosa eyrna á milli. Spamalot er ætlað að skemmta og gleðja. Þar sjáum við riddara sem syngja, dansa og stundum jafnvel gleyma hvers vegna þeir eru að berjast. Guð sem birtist með skyndilegar og órökstuddar fyrirskipanir. Verkið er stútfullt af óviðjafnanlegan húmor og tónlistaratriðum sem festast í minninu. Missið ekki af tækifærinu til að upplifa þetta sprenghlægilega ævintýri; kaupið miða áður en þeir eru allir farnir.
Spamalot verður ógleymanleg skemmtun og gefur nýja og skemmtilega sýn á klassíska sögu Arthúrs konungs og leit hans að hinum heilaga Gral. Gerðu þér greiða og heimsæktu þetta stórskemmtilega og snarbilaða ævintýri hjá leikfélagi Vestmannaeyja – þetta er ferð sem þú og þínir munu aldrei gleyma.
Tvær vinsælar sýningar verða í Kómedíuleikhúsinu um páskana.
Í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal í Dýrafirði verða haldnir sérstakir leikhúspáskar. Verða sýndar tvær vinsælar sýningar og hefst dagskráin á skírdag fimmtudaginn 28. apríl kl. 17.00 með sýningu á hinni vinsælu leik- og söngskemmtun Lífið er lotterí. Þar er á ferðinni skemmtun þar sem listaskáldinu Jónasi Árnasyni eru gerð skil í tónum, söng og tali. Það eru þau Dagný Hermannsdóttir og Guðmundur Hjaltason er flytja söngtexta Jónasar mörg hver við lög hans bróður Jóns Múla. Elfar Logi stígur einnig á stokk og segir frá skáldinu Jónasi, sko Árnasyni. Lífið er lotterí var frumsýnt síðasta haust í Kómedíuleikhúsinu og hefur fengið afar góðar viðtökur enda er hér á ferðinni ósvikin skemmtan þar sem allir geta tekið undir og þá ekki bara í viðlaginu. Lífið er sannarlega lotterí í Haukadal í Dýrafirði á páskum.
Á föstudaginn langa 29. apríl verður svo á fjölum Kómedíuleikhússins í Haukadal vinsælasta ævintýri allra tíma Dimmalimm eftir Bílddælinginn Mugg. Dimmalimm er einstaklega falleg og ævintýraleg brúðusýning sem hefur notið fádæma vinsælda og verið sýnd um land allt í mörg, mörg ár.
Söngleikjadeild Söngskólans í Reykjavík mun sýna söngleikinn Bugsy Malone í Þjóðleikhúsinu í apríl 2024
Kvikmyndin Bugsy Malone, sem hóf feril Jodie Foster og Scott Baio er hér orðin að stórskemmtilegri leikhúsupplifun í þessari endurgerð hinnar alræmdu sögu í frábærri þýðingu Davíðs Þórs Jónssonar. Tímabilið eru bannárin í New York, borg fullri af mafíósum, sýningarstúlkum og draumóramönnum. Keppinautarnir og glæpaforingjarnir Fat Sam og Dandy Dan eiga í miklum deilum. Dandy Dan hefur náð yfirhöndinni og nú eru Fat Sam og gengi hans í virkilegum vandræðum!
Inn kemur Bugsy Malone, peningalaus hnefaleikakappi en með eindæmum ágætur strákur. Það eina sem Bugsy vill í raun og veru gera er að eyða tíma með nýju ástinni sinni, Blousey. En mun hann geta staðist tælandi söngkonuna Tallulah og haldið sig fjarri vandræðum nógu lengi til að hjálpa Fat Sam að verja viðskipti sín…?
Bugsy Malone er fjörugur söngleikur, stútfullur af þekktum lögum frá Óskarsverðlaunahafanum Paul Williams, þar á meðal My Name is Tallulah, You Give a Little Love og Fat Sam’s Grand Slam.
Leikstjórn er í höndum Níelsar Thibaud Girerd. Danshöfundur er Júlía Kolbrún Sigurðardóttir og tónlistarstjóri er Sigurður Helgi.