Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýndi gamanleikinn Ef væri ég gullfiskur, eftir Árna Ibsen í Aratungu þann 25. mars. Að sögn leikdeildar manna hefur æfingaferlið gengið vel en „…bölvuð veiran hefur auðvitað sett svip sinn á það“. Leikarar eru 10 talsins og alls koma um 20 manns að uppfærslunni með einum eða öðrum hætti.Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson.
Um verkið: Að nóttu virðist gullfiskabúðareigandinn Pétur vera að undirbúa það að láta sig hverfa með peningafúlgu sem mögulega er illa fengin. Hann reynir að flýta sér en er stöðugt truflaður af sonum sínum sem birtast heima hjá pabba án þess að þeirra sé vænst eða óskað. Lausaleiksdrós, tengdadætur og tengdasonur bætast við og það er ekki beint að hjálpa upp á plan Péturs Aðalsteinssonar í Gullfiskum. Yfirreddarinn Tommi þvælist svo um fyrir öllum svo að liggur við stórslysum. Leikverkið er sígildur farsi sem kitlar hláturtaugarnar. Hurðum er skellt, misskilningur á sér stað, handalögmál, grátbrosleg atvik í bland við sprenghlægileg eins og eiga að prýða góðan farsa.
Sýningar eru annars sem hér segir: 25. mars. Frumsýning kl. 20 2. sýning 27. Mars Kl 17 3. sýning 30. mars Kl. 20 4. sýning 1. apríl kl. 20 5. sýning 2. apríl kl. 20 6. sýning 3. apríl kl. 17 Áætlaðar eru 12 sýningar í allt.
Það verður heldur betur mikið um dýrðir í Þjóðleikhúsinu á næstu vikum. Fram að páskum rekur hver frumsýningin aðra, auk þess sem vinsælar sýningar verða áfram á fjölunum, Framúrskarandi vinkona, Kardemommubærinn, Ásta og Vertu úlfur. Kjallarinn iðar líka af lífi! Við hlökkum til að sjá ykkur öll í leikhúsinu!
Umskiptingur Nýtt íslenskt barnaleikrit
Bráðskemmtilegt nýtt barnaleikrit eftir einn af okkar vinsælustu höfundum barnaefnis. Sigrún Eldjárn leikur sér hér á frumlegan og sniðugan hátt með minnið um umskiptinga úr gömlu þjóðsögunum okkar. Ragnhildur Gísladóttir semur tónlist eins og henni einni er lagið. Frumsýnt 19. mars
Í fyrsta sinn setur Þjóðleikhúsið upp leikrit eftir Caryl Churchill, eitt virtasta leikskáld Bretlands. Churchill (f. 1938) er í hópi framsæknustu leikskálda samtímans, og er hún ekki síst þekkt fyrir afar áhugaverðar tilraunir með form og innihald. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og verk hennar hafa verið sett upp í helstu leikhúsum Bretlands og víða um heim. Frumsýnt 25. mars
Farsakennd ævintýri, byggð á sönnum atburðum, þar sem við fylgjum eftir ferðalagi skammarinnar í íslenskri fjölskyldu frá kanamellum í Flórída að Lúkasarmálinu á Akureyri og skoðum allt þar á milli. Kópavogsbúinn Tyrfingur Tyrfingsson hefur slegið í gegn hér heima og vakið mikla athygli erlendis. Þetta nýja leikrit Tyrfings er sjöunda verk hans sem er sviðsett í íslensku leikhúsi, en hið fyrsta sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Frumsýnt 1. apríl
18 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum í leit að töffaralegum fötum. Síminn hringir, þetta er sæta stelpan sem var að vinna á Prinsinum í sumar. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Bráðskemmtilegt verk sem frumsýnt verður á Rifi og sýnt víða um land í kjölfarið. Sýningar í Reykjavík hefjast í haust. Frumsýnt 6. apríl
Föstudaginn 18.mars mun Leikfélag Keflavíkur frumsýna ungmennasöngleikinn Grease en söngleikurinn er settur upp í samstarfi við Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Vox Arena, leikfélag NFS.
Prufur voru haldnar í janúar þar sem mun færri komust að en vildu en það reyndist listrænum stjórnendum erfitt að velja en hópurinn sem endaði á sviðinu stendur sig framúrskarandi vel. Um er að ræða 18 manna hóp af 16-20 ára krökkum ásamt 6 manna hljómsveit sem Sigurður Smári Hansson stýrir.
Brynja Ýr Júlíusdóttir sér um leikstjórn og Sigríður Rut Ragnarsdóttir Ísfeld er danshöfundur. Listrænir stjórnendur voru allir þátttakendur í Fyrsta kossinum en því sýningarferli lauk 19.febrúar og því byrjuðu æfingar á Grease ekki af fullum krafti fyrr en um miðjan febrúar og því má algjörlega segja að síðustu vikur hafi verið mjög krefjandi fyrir alla sem koma að sýningunni.
Stjórnarmeðlimir Leikfélags Keflavíkur eru mjög ánægðir með það að geta stutt leikfélag NFS við að koma sinni starfsemi aftur á gott ról, en það leikfélag hefur ekki sett upp sýningu síðan árið 2018 þar sem Brynja var einnig leikstjóri. Við hvetjum alla að sjálfsögðu til að mæta á sýninguna og styðja við öflugt menningarstarf hjá leikfélögum Reykjanesbæjar/Suðurnesja.
Opnað hefur verið fyrir skráningu í hinn árlega Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga (BÍL). Skólinn hefur verið haldinn á hverju ári síðan 1997 en skólinn er að þessu sinni að Reykjaskóla í Hrútafirði.
KVEÐJA FRÁ SKÓLANEFND
Kæru leiklistarvinir!
Við hlökkum mikið til þess að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og fimmta sinn! Fjórfalt húrra fyrir þessum áfanga! Skólinn blómstar sem aldrei fyrr og við sjáum fram á mikla sköpun, metnað og gleði í sumar.
Að þessu sinni verða þrjú fjölbreytt námskeið í boði. Við bjóðum velkominn aftur Ólaf Ásgeirsson sem kennir Leiklist I að þessu sinni. Einnig bjóðum við velkomna í fyrsta sinn í kennarahópinn, Jennýju Láru Arnþórsdóttur. Hún mun kenna Leikstjórn II sem er framhald af námskeiði Völu Fannell frá 2021. Þess má geta að Jenný Lára og Vala hafa sömu menntun og mun Vala styðja við undirbúning námskeiðsins til að tryggja samfellu. Sérnámskeið fyrir reynda leikara verður svo í höndum hins þrautreynda kennara Ágústu Skúladóttur. Að þessu sinni verður það námskeiðið Hvernig segjum við sögu sem Ágústa hefur boðið upp á áður við góðar undirtektir. Þá bjóðum við höfundum í heimsókn til að skerpa stílvopnið!
Við vonum að sem flestir eigi þess kost að koma, nema og njóta.
Hlökkum til að sjá ykkur – með bestu kveðju, Hrefna, Dýrleif, Herdís, Hrund og Gisli Björn
Leikdeild UMF Skallagríms frumsýnir söngleikinn Slá í gegn föstudaginn 11. mars. Söngleikurinn er eftir Guðjón Davíð Karlsson (Góa). Innblástur verksins er sóttur í lög Stuðmanna. Leikstjóri er Elvar Logi Hannesson og sýnt er í Félagsheimiinu Lyngbrekku.
Manndýr er nýtt barna- og þátttökuverk eftir Aude Busson sem frumsýnt verður 13. mars nk. í Tjarnarbíó. Verkið skoðar hlutverk manneskjunnar í heiminum með augum barna, en verkið og hljóðmynd þess er að miklu leyti byggt á viðtölum Aude við börn.
– Þegar maður hugsar út í það, þá er maður bara til af því að maður er til…
– Eða til, til að gefa dýrunum?
– Til… til að fjölga ormunum?
– Eða erum við til fyrir heiminn?
– En aftur á móti, þá endist jörðin ekki að eilífu, þannig að ef maður hugsar úti það, þá getur maður ekki bara haldið áfram að fæðast, fæðast og fæðast…
Af hverju er maðurinn til? Af hverju er barn til? Hvað gera þau og til hvers? Þessum spurningum velta börnin í Manndýr fyrir sér. Svör þeirra og vangaveltur eru einlæg, djúp, alvarleg og oft á tíðum sprenghlægileg.
Manndýr er á mörkum þess að vera leikverk og innsetning. Í rýminu er manndýr, sem Aude leikur, í tilvistarkreppu að reyna að púsla sögu sinni saman á ný og skilja tilgang sinn í heiminum. Á milli leikrænna atriða eru börn jafnt sem fullorðnir hvattir til að taka þátt og leika saman. Gestum er boðið inn í heim þar sem hægt er að upplifa með eyrum, augum og höndum, sjálf eða í samvinnu. Við gefum okkur tíma til að spyrja spurninga sem fá svör eru við og dvelja í heimi þar sem börn segja alla söguna.
Aude Busson er sviðslistarkona sem hefur áhuga á að skapa sýningar og viðburði sem byggja á þátttöku áhorfenda og þá sérstaklega með samvinnu barna og fullorðinna. Síðasta verk hennar “Ég elska Reykjavík” var fjölskyldugöngsýning og var tilnefnd til Grímuverðlauna.
Sigríður Sunna Reynisdóttir er sviðshöfundur og hönnuður. Hún hefur unnið leikmyndir, búninga og leikbrúður fyrir fjölda sýninga í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, í Tjarnarbíó og víðar síðustu ár, auk þess að framleiða eigin sviðsverk.
Björn Kristjánsson eða Borko er tónlistarmaður og grunnskólakennari. Hann hefur unnið bæði í leikhúsi og í tónlistarheiminum í tæp 20 ár og leitt fjölda tónlistarverkefna með börnum.
Leikfélag Hörgdæla æfir af fullum krafti leiksýninguna Í fylgd með fullorðnum í húsnæði félagsins að Melum þessa dagana. Í fylgd með fullorðnum er lífleg sýning sem segir frá gleði og sorgum persóna sem finna má í textum Bjartmars Guðlaugssonar og skipar tónlist hans ríkan sess í sýningunni. Leikritið er skrifað af Pétri Guðjónssyni sem jafnframt leikstýrir verkinu.
Frumsýning verður fimmtudaginn 10. mars en uppselt er á fyrstu þrjár sýningarnar.
Verkið byggir á lögum og textum Bjartmars Guðlaugssonar eins og áður sagði og er um alheimsfrumflutning að ræða. Lög Bjartmars eru mörgum kunn og Hörgdælir lofa miklu fjöri og skemmtun. 17 leikarar ásamt hljómsveit munu stíga á svið, sumir alvanir en aðrir að stíga sín fyrstu skref. Þar fyrir utan er fjöldi manns sem kemur að uppsetningunni.
Sýningar eru fyrirhugaðar í mars og apríl. Leikfélag Hörgdæla og fyrirrennar þess hafa sett upp upp leiksýningar að Melum um áratugaskeið við góðan orðstír.
Leikritið var valið úr 150 leikverkum sem bárust þegar Þjóðleikhúsið kallaði eftir leikritum og hugmyndum að leikritum fyrir börn.
Ragnhildur Gísladóttir semur tónlistina en meðal fyrri barnaverka sem hún hefur samið tónlist fyrir eru Píla Pína og Glámur og Skrámur í Sælgætislandi.
Sara Martí leikstýrir verkinu en þar er brugðið á leik með minnið um umskiptingana úr þjóðsögunum.
Laugardaginn 12. mars frumsýnir Þjóðleikhúsið Umskipting, nýtt barnaleikrit eftir einn ástsælasta barnabókahöfund landsins, Sigrúnu Eldjárn. Í verkinu bregður hún á frumlegan og sniðugan hátt á leik með minnið um umskiptinga úr þjóðsögunum okkar. Sara Martí leikstýrir og tónlistina semur Ragnhildur Gílsadóttir. Umskiptingur kemur einnig út sem bók á vegum Forlagsins um þessar mundir.
Það er alltaf gleðifregn þegar nýtt íslenskt barnaleikrit ratar á fjalir leikhúsanna og ekki er það verra að verkið sé eftir einn af vinsælustu höfundum barnaefnis á umliðnum áratugum, Sigrúnu Eldjárn. Í verkinu Umskiptingur bregður hún á frumlegan og sniðugan hátt á leik með minnið um umskiptinga úr þjóðsögunum okkar. Allt frá því að fyrsta bók Sigrúnar, Allt í plati, kom út árið 1980 hefur hún fléttað texta og myndir saman í bókum sínum á allan mögulegan máta og oft mjög frumlega. Þetta er í annað sinn sem verk Sigrúnar ratar á fjalir Þjóðleikhússins en sýningin Kuggur og leikhúsvélin var sett upp árið 2014 og naut mikillar hylli.
Ævintýralegt leikrit um tröll og menn, ofurhetjur, smákríli ogdreka Í Umskiptingi segir frá systkinunum Sævari og Bellu. Einu sinni sem oftar þarf Sævar að gæta litlu systur sinnar, sem satt að segja getur verið alveg ferleg frekjudolla! En Bella er alveg einstaklega krúttleg og þegar tröllskessa með óslökkvandi fegurðarþrá sér hana ákveður hún að skipta á henni og hinum stórgerða, uppátækjasama og hjartahlýja syni sínum, tröllastráknum Steina. Nú eru góð ráð dýr, en í ljós kemur að hjálpar má vænta úr ólíklegustu áttum!
Sara Martí Guðmundsdóttir er leikstjóri verksins en hún hefur komið víða við frá því að hún útskrifaðist sem leikari úr Listaháskólanum árið 2007. Sara hefur leikið bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og látið til sín taka í sjálfstæðu senunni. Sara lagði stund á leikstjórn í The Royal Central School of Speech and Drama í London og útskrifaðist þaðan árið 2010. Sara mun taka við stöðu leikhússtjóra Tjarnarbíós.
Það er svo engin önnur en Ragnhildur Gísladóttir sem samdi tónlistina við verkið eins og henni einni er lagið.
Þjóðleikhúsið auglýsti á síðasta ári eftir handritum eða vel útfærðum hugmyndum að barnaleikritum til að efla starfsemi leikhússins í þágu barna og hvetja til ritunar nýrra, íslenskra barnaleikrita. Þetta var jafnframt í fyrsta skipti sem auglýst var eftir barnaleikritum með þessum hætti og viðbrögðin létu sannarlega ekki á sér standa. Alls bárust 150 umsóknir.
Í nóvember 2021 var tekin sú ákvörðun hjá Freyvangsleikhúsinu að setja á svið barnaleikrit eftir áramót. Félagið fékk Óla Jens leikstjóra til liðs við sig í því skyni og hinn sívinsæli Kardemommubær varð fyrir valinu. Það gekk þó ekki snurðulaust að fá leyfi fyrir sýningunni, þar sem verkið er nú í sýningu hjá Þjóðleikhúsinu. Það blessaðist þó allt að lokum og prufur fyrir leikara voru haldnar í byrjun desember. Þar mætti stór hópur fullorðinna og barna og komust færri að en vildu eins og gengur. Valið var í hlutverk og æfingar hófust í byrjun janúar, viku á eftir áætlun sökum Covid. Er svo sú veira búin að vera leikhópnum ansi snúin á æfingarferlinu og margir þurft að dúsa í sóttkví eða einangrun þegar þeir áttu að vera á æfingu. Með batnandi tíð, breyttum Covid-tímum og einstöku viðhorfi, samheldni og þrautseigju leikara sem og allra sem að sýningunni koma er Kardemommubærinn nú loks tilbúinn til sýningar í Freyvangi.
Kardemommubærinn fer nú í annað skipti á svið hjá Freyvangsleikhúsinu en fyrir 16 árum síðan var verkið sett upp í leikstjórn Sunnu Borg. Erum við því með bæði nýtt sem og reyndara fólk í öllum stöðum. Hátt í 60 manns sem koma að sýningunni á einn eða annan hátt, þar af 30 leikarar og hljómsveit á sviði. Einnig er skemmtileg aldursflóra þar sem yngsti meðlimur á sviði er 11 ára og sá elsti 77 ára. Frumsýning verður föstudaginn 4.mars kl.20:00 og sýnt verður alla laugardaga og sunnudaga í mars kl.13:00.
Einstakur happafengur að fá hinn margverðlaunaða suður-afríska leikstjóra Yaël Farber til að stýra uppsetningunni
29 leikarar taka þátt í sýningunni sem er ein umfangsmesta uppsetning Þjóðleikhússins í áraraðir.
Vinkonurnar Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir fara með aðalhlutverk og leika saman á sviði í fyrsta sinn.
Tvö hlé og þriggja rétta ítölsk matarveisla í boði fyrir leikhúsgesti í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu. Mögnuð leikhúsupplifun. Þjóðleikhúsið frumsýnir Framúrskarandi vinkonu á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 5. mars. Sýningin er byggð á Napólífjórleik Elenu Ferrante en bækurnar hafa notið gríðarlegra vinsælda og verið gefnar út um allan heim. Leikstjóri er Yaël Farber frá Suður-Afríku en hún er ein af eftirsóttari leikstjórum heimsins í dag. Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir fara með hlutverk þeirra Lenù og Lilu, vinkvennanna tveggja sem vaxa úr grasi í harkalegu umhverfi í Napólí á 6. áratugnum.
Framúrskarandi vinkona er ein umfangsmesta uppsetning Þjóðleikhússins í áraraðir. Alls taka 29 leikarar þátt í þessari mögnuðu stórsýningu, sem tekur um fjórar klukkustundir með tveimur hléum. Bækurnar sem leikverkið er byggt á hafa hrifið lesendur um allan heim og lifna nú við í uppsetningu hins margverðlaunaða suður-afríska leikstjóra Yaël Farber, en koma hennar hingað til lands er einstakur happafengur fyrir íslenskt leikhúslíf. Vinkonurnar Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir fara með hlutverk hinna skarpgreindu vinkvenna Lenù og Lilu sem alast upp í fátækrahverfi Napólíborgar um og upp úr miðri síðustu öld. Þær þurfa að beita öllum brögðum til að komast af, brjótast til mennta og berjast fyrir betra lífi í harkalegu umhverfi þar sem ofbeldi stjórnar tilverunni og réttur kvenna er lítils virtur.
Leikstjórinn sem treystir tilviljunum Þegar Yaël Farber fékk símtal frá Magnúsi Geir þjóðleikhússtjóra og heyrði hvert erindið væri ætlaði hún vart að trúa eigin eyrum. „Þetta var dásamleg tímasetning. Ég hafði tekið Napólífjórleik Elenu Ferrante með mér til Kúbu og gleypt allar bækurnar í mig á örstuttum tíma. Var algerlega heilluð. Bókstaflega sama dag og ég lauk við fjórðu bókina hringdi Magnús, en þá höfðu nýlega orðið breytingar á mínum áætlunum. Ég treysti svona tilviljunum og þekktist boðið þegar í stað.“
Matur og leikhús – þriggja rétta máltíð í boði fyrir sýningu og í hléum í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn Þjóðleikhúsið hefur nú stórbætt þjónustu við leikhúsgesti og býður nú í fyrsta sinn upp á þriggja rétta kvöldverð sem gestir geta notið fyrir sýningu og í tveimur hléum. Gestum stendur til boða að koma snemma og gæða sér á ljúffengri súpu fyrir sýningu, Napólíplatta í fyrra hléi og eftirrétti í seinna hléi. Aðrar veitingar eru einnig í boði, en panta verður með tveggja sólarhringa fyrirvara. Sýningin hefst kl. 19.00 en húsið opnar kl. 18.00 fyrir matargesti.