Bókmenntaganga – Tímaþjófurinn
Menningarhús Grófinni, laugardag 9. september kl. 15.00 – 16.30
Borgarbókasafnið og Þjóðleikhúsið bjóða til bókmenntagöngu um söguslóðir skáldsögunnar Tímaþjófsins eftir Steinunni Sigurðardóttur, en gangan var fyrst farin á vormánuðum. Tímaþjófurinn kom út árið 1986 og sló þá í gegn, en Þjóðleikhúsið frumsýndi leikrit í uppsetningu Unu Þorleifsdóttur, byggt á bókinni, nú í vor. Göngunni lýkur í Kassanum, þar sem gestir fá innsýn í heiminn handan tjaldsins og Nína Dögg Filippusdóttir leikkona les úr bókinni.
Gangan hefst við Borgarbókasafnið í Grófinni. Gengið verður um söguslóðir Tímaþjófsins og lesið úr verkinu, en áð verður í Hólavallakirkjugarði, Dómkirkjunni og við Menntaskólann í Reykjavík. Steinunn Sigurðardóttir slæst sjálf í hópinn og spjallar við göngufólk. Göngunni lýkur með heimsókn í Þjóðleikhúsið, sem opnar Kassann fyrir göngufólki. Þar taka Una Þorleifsdóttir, leikstjóri sýningarinnar, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, höfundur leikgerðar og Nína Dögg Filippusdóttir, leikkona, á móti fólki. Nína Dögg les úr bókinni og skyggnst verður inn í ferðalag Öldu af síðum skáldsögu og inn í sviðsljósið.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir. Kaffi og kleinur gegn vægu gjaldi.
Sýningar á Tímaþjófnum hefjast að nýju laugardagskvöldið 9. september.
Sýningarfjöldi er takmarkaður, og nú þegar er uppselt á nokkrar sýningar.