Blíðfinnur
Leikfélag Sólheima sýnir Blíðfinn í Íþróttaleikhúsinu á Sólheimum. Leikritið byggir á tveimur fyrstu bókum Þorvalds Þorsteinssonar.
Aðalpersónan er drengurinn Blíðfinnur og fjallar sagan um ævintýraför hans þar sem hann rekst á marga kynlega kvisti og einkennileg fyrirbæri. Bækur Þorvaldar hafa verið þýddar á fjölda tungumála og fengið barnabókaverðlaun. Þorvaldur skrifaði einnig Skilaboðaskjóðuna sem sýnd var á Sólheimum árið 2013. Reynir Pétur Steinunnarson Sólheimabúi samdi tónlistina í verkinu sem hann mun flytja með dyggri aðstoð. Eins mun hann leika frumsamda tónlist sína fyrir sýningar.
Með leikstjórn verksins fer Þórný Björk Jakobsdóttir.
Frumsýning verður að venju á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl kl 15:00.
Sýningar eru eftirfarandi:
Laugardagur 25. apríl kl 16:00.
Sunnudagur 26. apríl kl 15:00.
Laugardagur 2. maí kl 15:00.
Sunnudagur 3. maí kl 15:00 – lokasýning.
Miðasala er í síma 847 5323.