Bakkabræður mæta loksins í Kómedíuleikhúsið
Hygðust frumsýna þann 1. Apríl en allt fór úrskeiðis
Kómedíuleikhúsið vinnur hörðum höndum þessa dagana að æfingum á
uppsetningu brúðuleikritsins Bakkabræður sem fjallar um ævintýri hinna
þjóðþekktu bræður Gísla, Eirík og Helga. Í sýningunni eru kostuleg
ævintýri Bakkabræðra sett í spaugilegan búning með töfrum
brúðuleikhússins.
Kómedíuleikhúsið kemur nú tvíelft tiltaka eftir síðasta samkomubann og
ætlar sér að frumsýna Bakkabræður með pomp og prakt þann 22. Maí í
Kómedíuleikhúsinu í Haukadal, Dýrafirði en þetta verður önnur tilraun
leikhússins til að frumsýna verkið. Hvern hefði órað fyrir að eitthvað
gæti farið úrskeiðis við að frumsýna verk um klaufabárðana sem
Bakkabræður eru, þann 1. apríl?
Lögin í sýningunni eru sungin af Diddú við tónlist sem Björn Thoroddsen,
gítarleikari, samdi og flytur. Marsibil G. Kristjánsdóttir hannar
ævintýraheim leiksýningarinnar og gerir brúðurnar sömuleiðis. Leikari og
þjónn brúðanna er Elfar Logi Hannesson, sem einnig er höfundur verksins
ásamt Sigurþóri A. Heimissyni sem jafnframt leikstýrir.