Aukasýningar á Sporvagninn Girnd
Hið seiðmagnaða leikrit Sporvagninn Girnd er eitt þekktasta verk bandarískra leikbókmennta á 20. öld.
Hin viðkvæma og fíngerða Blanche DuBois má muna sinn fífil fegri. Þegar veröld hennar virðist vera að hrynja leitar hún ásjár hjá Stellu, yngri systur sinni, sem býr í verkamannahverfi í New Orleans. Í eilífri leit sinni að fegurð, mildi og umhyggju verður Blanche fyrir áfalli þegar hún kynnist hinum ruddafengna og ósiðaða Stanley, eiginmanni Stellu, og spennan magnast fljótt á milli þeirra. Blanche líður best í hálfrökkri, en óttast það mest að vera afhjúpuð og að napur sannleikurinn blasi við.
Stefán Baldursson er einn fremsti leikstjóri þjóðarinnar en nýjasta uppsetning hans, óperan Ragnheiður, hlaut Grímuna sem besta sýning ársins á liðnu leikári.
Sporvagninn Girnd er sýnt samkvæmt sérstöku samkomulagi við The University of the South, Sewanee, Tennessee.
Bætt hefur verið við tveimur aukasýningum á Sporvagninum Girnd, þann 10. og 22. apríl í Þjóðleikhúsinu.