Arty Hour #10
Á síðasta ári voru reglulega haldnir viðburðir í Tjarnarbíó undir nafninu Arty Hour, en þar komu fram þeir listamenn sem voru með vinnustofu eða með verk í vinnslu í Tjarnarbíó. Á morgun verður þeirri hefð haldið áfram.
Arty Hour er haldinn á Tjarnarbarnum, aðgangur er ókeypis og að venju eru ljúffengar veitingar í boði á barnum.
Mælendur verða:
– Bjartmar Þórðarson og Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, sem sýna verkið Skepnu um þessar mundir.
– Tryggvi Gunnarsson og Hilmir Jensson í leikhópnum Sóma þjóðar munu fjalla um síðasta verk þeirra, MP5, sem og nýtt stykki.
– Ragnar Ísleifur Bragason í Kriðpleir með verkið Síðbúin rannsókn.
– Meðlimir Möguleikhússins, en þau setja upp verkið Eldbarnið þessa dagana.