Leiklistar- og spunanámskeið í haust hjá Improv Íslandi og Gafló | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Leiklistar- og spunanámskeið í haust hjá Improv Íslandi og Gafló

    Ef þú vilt færa þig úr sætinu á sviðið að þá er gott námskeið góð byrjun.

    Fjölbreytt leiklistar- og spunanámskeið eru fram undan í haust hjá Improv Íslandi og Gafló – Leiklistarskóla Gaflaraleikhússins. Í boði eru námskeið fyrir börn, ungmenni og fullorðna, jafnt byrjendur sem þau sem vilja halda áfram að byggja ofan á fyrri reynslu.

    Framhaldsnámskeið hjá Improv Íslandi

    Improv Ísland býður upp á tvö framhaldsnámskeið í Austurstræti 5 í haust.
    Spuni 201 – Leikurinn hefst 12. október og er átta skipti. Kennt er á mánudögum og fimmtudögum kl. 19–22. Spuni 101 eða sambærilegt námskeið er undanfari.


    Spuni 301 – Haraldurinn hefst 1. nóvember. Námskeiðið er einnig átta skipti og fer fram á sunnudögum kl. 19–22 í Austurstræti 5. Um er að ræða framhaldsnámskeið.

    Leiklist og spuni fyrir börn og ungmenni hjá Gafló

    Gafló – Leiklistarskóli Gaflaraleikhússins býður upp á námskeið fyrir nokkra aldurshópa frá 12. október til 4. desember.
    Fyrir 7–9 ára og 10–12 ára eru í boði þrír hópar og er kennt á mánudögum, þriðjudögum eða miðvikudögum kl. 15:30–17:00.
    Fyrir 13–16 ára er í boði námskeiðið Spuni og senuvinna. Það fer fram á mánudögum kl. 19:00–21:00 frá 12. október til 4. desember.
    Gafló býður jafnframt upp á inntökuprófanámskeið frá 11. október til 1. nóvember. Námskeiðið fer fram á sunnudögum kl. 13–17 og er ætlað sem undirbúningur fyrir leiklistarprufur.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!