Bót og betrun hjá VMA
Leikfélag VMA frumsýnir Bót og betrun eftir Michael Cooney fös. 3. febrúar. Verkið er sprenghlægilegur hurðafarsi um svindl, svik og pretti í félagslega kerfinu. Aðalpersóna verksins er Erik Swan sem eftir að hafa verið sagt upp í vinnunni, grípur til þess ráðs að svíkja peninga út úr félagslega kerfinu á mjög svo vafasömum forsendum. Hann ætlar að láta af svikunum en það reynist þrautin þyngri enda flæktur í ótrúlegan lygavef.
Leikfélag VMA hefur undanfarin ár sýnt mörg vinsæl leikrit og að þessu sinni er verkefnið kolbrjálaður hurðafarsi í leikstjórn hinnar margreyndu Sögu Geirdal Jónsdóttur.
Leikfélagið ráðleggur gestum að spenna magavöðvana þegar þeir mæta í Vasaleikhúsið í VMA.
Leikarar í sýningunni eru:
Örn Smári Jónsson
Franz Halldór Eydal
Katla Snædís Sigurðardóttir
Hanna Lára Ólafsdóttir
Sigríður Erla Ómarsdóttir
Hemmi Ósk Baldursbur
Sigrún Karen Yeo
Ingólfur Óli Ingason
Guðmar Gísli Þrastarson
Svavar Máni Geislason
Höfundur: Michael Cooney
Þýðing: Hörður Sigurðarson
Sýningar:
Frumsýning 3. febrúar klukkan 20:00
4. febrúar klukkan 20:00
10. febrúar klukkan 20:00
11. febrúar klukkan 20:00
Staðsetning: Verkmenntaskólinn á Akureyri
Húsið opnar alltaf 19:30