Þjóðleikhúsið frumsýnir Ex
- Leikarar eru Nína Dögg, Gísli Örn og Kristín Þóra
- Sama listræna teymið og í Ellen B. – Marius von Mayenburg, Benedict Andrews, Nina Wetzel, Björn Bergsteinn Guðmundsson og Gísli Galdur
- Ellen B. hefur fengið frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda
- Einsdæmi að Þjóðleikhúsið setji upp þríleik. Margir áhorfendur sem sáu Ellen B bíða spenntir. Þrjú sjálfstæð verk sem mynda þó heild.
Þjóðleikhúsið frumsýnir Ex, annan hlutann í þríleik eftir Marius von Mayenburg í leikstjórn Benedicts Andrews, laugardaginn 28. janúar á Stóra sviðinu. Skemmst er að minnast heimsfrumsýningar á Ellen B., fyrsta hluta þríleiksins, sem frumsýndur var á annan dag jóla og hefur fengið gríðarlegt lof áhorfenda og gagnrýnenda. Eftirvæntingin er því mikil eftir Ex.
Leikarar í sýningunni eru Nína Dögg Filippusdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Gísli Örn Garðarsson. Listræna teymið er hið sama og í Ellen B., Benedict Andrews leikstýrir, Nina Wetzel hannar leikmynd og búninga, Björn Bergsteinn hannar lýsingu og Gísli Galdur er höfundur tónlistar. Í haust mun Mayenburg sjálfur leikstýra þriðja verki þríleiksins, Egal (Alveg sama).
Ex er flugbeitt sálfræðidrama og annað verkið í splunkunýjum þríleik Mariusar von Mayenburg sem verðlaunaleikstjórinn Benedict Andrews leikstýrir. Á fallegu heimili fyrirmyndarhjóna, arkítekts og læknis með tvö ung börn er bankað upp á um miðja nótt. Fyrir utan stendur fyrrverandi kærasta eiginmannsins og bráðvantar samastað eftir að hafa flutt út frá sambýlismanni sínum í miklum flýti. Fljótlega breytist heimilið í vígvöll þar sem ásakanir og uppljóstranir þjóta á milli eins og byssukúlur. Hvað dró þetta fólk hvert að öðru í upphafi?
Hvort skiptir meira máli í hjónabandi til lengdar, ástríðan eða sameiginleg markmið, lífssýn og samfélagsstaða? Af vægðarleysi og sótsvörtum húmor er tekist á við ágengar spurningar um hjónabandið, ástina og tærandi afbrýðisemi, lífsorkuna og lífsleiðann, fjölskylduna, kynlífið og ofbeldið í samböndum fólks.
Ex var frumflutt hjá Riksteatern í Svíþjóð 2021 í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni réttnefnt leikhúskonfekt, þar sem stórleikarar í bitastæðum hlutverkum kryfja líf nútímafólks.