Hið stórfenglega ævintýri um missi
Að missa ástvin er einhver sú
erfiðasta, fallegasta og flóknasta lífsreynsla sem við göngum í gegnum. Hún er
óumflýjanlegur hluti þess að lifa og elska. Flest munum við upplifa missi. Nema
auðvitað ef við verðum svo heppin (eða óheppin) að vera fyrst til að fara. Þið
vitið, því við munum auðvitað öll deyja. Ekkert okkar flýr köldu fjötra tímans.
Hið stórfenglega ævintýri um missi er
grátbrosleg, einlæg og drepfyndin sýning um það hvað það er sem við söknum
þegar við missum ástvin. Við förum ósjálfrátt að líta til baka og gera upp
fortíðina. Hverju viljum við muna eftir? Viljum við tala um hið sára og ljóta
eða ætlum við bara að halda uppi fullkominni mynd af manneskjunni sem við
misstum? Leikkonan Gríma og hennar besta vinkona, trúðurinn Jójó, eiga samtal um
reynslu Grímu af missi og fara um víðan völl. Þær tala um fortíð, framtíð,
foreldra, sorg og gleði. Um óttann við að allir komist að því að þau sem Gríma
missti voru ekki fullkomin. Um það að gamlir menn eigi ekki að eignast börn. Um
það ótrúlega augnablik þegar maður áttar sig á því að ekkert skiptir meira máli
en fólk, tengsl og ást.
„Það verður auðvitað að kíkja svo á eitthvað
krassandi og dramatískt til að gera góða sýningu. Eins og þegar mamma þín bað
læknana um að klippa á eggjastokkana um leið og þú varst tekin með keisara af
því hún vildi alls ekki eignast fleiri börn. Segir ákveðna sögu“ – Jójó
Aðstandendur sýningarinnar:
Leikstjórn: Rafael Bianciotto
Höfundur: Gríma Kristjánsdóttir og hópurinn
Leikkona: Gríma Kristjánsdóttir
Tónlist: Þórður Sigurðarson
Leikmynda- og búningahönnun: Eva Björg Harðardóttir
Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson
Aðstoðarleikstjórn: Halldóra Markúsdóttir
Ljósmyndun og grafísk hönnun: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Myndataka og klipping: Árni Beinteinn
Markaðsstjórn: Martin L. Sörensen