FÍFLIÐ – Karl Ágúst Úlfsson (Kveðjusýning)
Karl Ágúst Úlfsson ætlar að ljúka sviðsferlinum með leiksýningu eftir sjálfan sig í Tjarnarbíói. Sýningin verður frumsýnd í byrjun september og heitir Fíflið.
Í viðtali í Vikulokunum á Rás1 um síðastliðna helgi segir Karl Ágúst meðal annars: „Fíflið er fyrirbæri sem er orðið afgamalt í mannkynssögunni, hirðfíflið. Sá sem veitir konungnum og valdhafanum aðhald. Fíflið má segja hvað sem er svo framarlega sem það er fyndið. Þegar ég fór að velta fyrir mér ferli mínum og hvernig ég vildi að þessu lyki þá leitaði þessi hugmynd mikið á mig. Ég hef í raun og veru, ásamt félögum mínum, gengt einhverskonar hliðstæðu hlutverki við fíflið við hirð konunga.“
HVORT VILTU HELDUR VERA KÓNGURINN EÐA FÍFLIÐ?
Það er vandasamt að hafa vald yfir öðru fólki. Þess vegna hafa allir konungar þurft á því að halda að einhver standi við hlið hásætisins og dragi þá sundur og saman í háði. Einhver þarf að gera völd konungsins hlægileg og minna hann á að þrátt fyrir allt er hann ófullkominn maður eins og við hin. Þetta er hlutverk hirðfíflsins. Og fíflinu leyfist að segja nánast hvað sem er í návist konungsins – svo framarlega sem það er fyndið.
Í sýningunni Fíflið kynnumst við hirðfíflum allra tíma og heimshluta og rýnum í samband fíflsins og valdsins. Eru það verstu harðstjórarnir sem ekki þola að skopast sé með þá? Er fíflinu bókstaflega ekkert heilagt? Getur fíflið haft raunveruleg áhrif á rás sögunnar og eru fíflið og kóngurinn ef til vill ein og sama persónan þegar allt kemur til alls?
Karl Ágúst Úlfsson hefur brugðið sér í allra kvikinda líki í íslensku menningarlífi og meðal annars gegnt hlutverki fíflsins við hirð þeirra sem stjórna samfélagi okkar. Í þessu verki setur hann eitt og annað í nýtt og óvænt samhengi, en þar kemur 40 ára reynsla hans sem samfélagsrýnir, höfundur og sviðslistamaður í góðar þarfir.
HANDRIT: Karl Ágúst Úlfsson
LEIKSTJÓRN: Ágústa Skúladóttir
TÓNLIST: Eyvindur Karlsson
LEIKMYND OG BÚNINGAR: Guðrún Öyahals
LÝSING: Ólafur Ágúst Stefánsson
FLYTJENDUR: Karl Ágúst Úlfsson og Eyvindur Karlsson