Tvær sýningar með sjö tilnefningar til Grímunnar
Veitt eru verðlaun í 19 flokkum á Grímunni í ár auk heiðursverðlauna Sviðslistasambands Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum reyndist ekki unnt að tilnefna í flokknum Danshöfundur ársins, en verðlaunahafinn verður kosinn beinni kosningu af valnefnd Grímunnar.
Vegna yfirstandandi heimsfaraldurs hefur reglum Grímunnar verið hliðrað til annað árið í röð og því færast sýningarnar Hælið, sem frumsýnt var í september, og Fullorðin, sem frumsýnd var í byrjun árs, til næsta verðlaunaárs. Sem kunnugt var sýningunni Níu líf, sem frumsýnd var í mars 2020, ekki lögð fram til Grímunnar í fyrra þar sem ekki náðu nógu margir dómnefndarmenn að sjá hana vegna samkomubanns. Þar sem ekki reyndist unnt að sýna verkið á yfirstandandi leikári vegna samkomutakmarkana færist Níu líf yfir á næsta verðlaunaár.
Tilnefningar ársins eru sem hér segir:
Sýning ársins 2021
- Ekkert er sorglegra en manneskjan eftir Friðrik Margrétar Guðmundsson. Sviðsetning – Adolf Smári Unnarsson og Friðrik Margrétar Guðmundsson í samstarfi við Tjarnarbíó.
- Haukur og Lilja – Opnun eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Sviðsetning – EP Sviðslistahópur.
- Vertu úlfur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Héðin Unnsteinsson. Sviðsetning – Þjóðleikhúsið.
Leikrit ársins
- Haukur og Lilja – Opnun eftir Elísabetu Jökulsdóttur
- The Last Kvöldmáltíð eftir Kolfinnu Nikulásdóttur
- Vertu úlfur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Héðin Unnsteinsson
Leikari ársins í aðalhlutverki
- Björn Thors fyrir hlutverk sitt í sýningunni Vertu úlfur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Ólafur Ásgeirsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Co za poroniony pomysł –
- Úff hvað þetta er slæm hugmynd! í sviðsetningu Leikhópsins Pól-Ís í samstarfi við Tjarnarbíó
- Sigurður Þór Óskarsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Veisla í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikkona ársins í aðalhlutverki
- Edda Björg Eyjólfsdóttir – fyrir hlutverk sitt í sýningunni Haukur og Lilja – Opnun í sviðsetningu EP Sviðslistahóps
- Helga Braga Jónsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni The Last Kvöldmáltíð í sviðsetningu Leikhópsins Hamfarir í samstarfi við Tjarnarbíó
- Ilmur Kristjánsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Kópavogskrónika í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Vala Kristín Eiríksdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Oleanna í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikari ársins í aukahlutverki
- Arnmundur Ernst Backman Björnsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Kópavogskrónika í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Kjartan Darri Kristjánsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Kafbátur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Hilmir Snær Guðnason fyrir hlutverk sitt í sýningunni Nashyrningarnir í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikkona ársins í aukahlutverki
- Ásthildur Úa Sigurðardóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni The Last Kvöldmáltíð í sviðsetningu Leikhópsins Hamfarir í samstarfi við Tjarnarbíó
- Birna Pétursdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Benedikt Búálfur í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Nashyrningarnir í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikstjóri ársins
- Adolf Smári Unnarsson fyrir sýninguna Ekkert er sorglegra en manneskjan í sviðsetningu Adolfs Smára Unnarssonar og Friðriks Margrétar Guðmundssonar í samvinnu við Tjarnarbíó
- María Reyndal fyrir sýninguna Haukur og Lilja – Opnun í sviðsetningu EP Sviðslistahóps
- Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir sýninguna Vertu Úlfur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Sproti ársins
- Ekkert er sorglegra en manneskjan: „Hér er óperuformið glætt nýju lífi þar sem samsöngur, samhljómur og sammannleg upplifun skiptir höfuðmáli. Höfundum tekst listavel að þræða saman hversdagsleg efnistök textans, dramatíska tónlistina og stílhreina framkomu flytjenda. Óvænt og fyndin nútímaópera um leitina að hamingjunni, auknum afköstum í vinnunni og eilífa þrá Íslendingsins eftir betri tíð.“
- Kolfinna Nikulásdóttir fyrir leikverkið The Last Kvöldmáltíð: „Í The Last Kvöldmáltíð sjáum við frumlegan stíl og húmor. Leikskáldið brýtur viðtekin gildi og vekur upp spurningar um manneskjuna, þjóðernishyggju og þjóðrembu. Skapar sterka leikhúsupplifun með frumlegu efnisvali og djörfum og áleitnum texta.“
- Leikhópurinn PólíS: Co za poroniony pomysł – Úff hvað þetta er slæm hugmynd! er verk sem lifir með áhorfandanum löngu eftir að tjaldið fellur. Leikhópurinn kafar ofan í tvo menningarheima og fléttar þá saman. Afraksturinn er kvöldstund þar sem listamenn og leikhúsgestir af íslenskum og pólskum uppruna ná samhljómi þvert á uppruna og tungumál.
Barnasýning ársins
- Dagdraumar eftir Ingu Maren Rúnarsdóttur í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
- Kafbátur eftir Gunnar Eiríksson í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Tréð eftir Söru Marti Guðmundsdóttur og Agnesi Wild í sviðsetningu Leikhópsins Lalalab í samstarfi við Tjarnarbíó
Útvarpsverk ársins
- Litlu jólin eftir Bjarna Jónsson, Árna Vilhjálmsson, Ragnar Ísleif Bragason og Friðgeir Einarsson í leikstjórn Leikhópsins Kriðpleir, í sviðsetningu Útvarpsleikhússins og RÚV
- Með tík á heiði eftir Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur í leikstjórn Silju Hauksdóttur, í sviðsetningu útvarpsleikhússins og RÚV
- Vorar skuldir eftir Bjarna Jónsson, Árna Vilhjálmsson, Ragnar Ísleif Bragason og Friðgeir Einarsson í leikstjórn Leikhópsins Kriðpleir, í sviðsetningu Útvarpsleikhússins og RÚV
Dans og sviðshreyfingar ársins
- Chantelle Carey fyrir sýninguna Kardemommubærinn í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim Kvaran, Nick Candy, Bryndís Torfadóttir, Thomas
- Burke fyrir sýninguna Allra veðra von í sviðsetningu Hringleiks í samstarfi við Tjarnarbíó
- Unnur Elísabet Gunnarsdóttir fyrir sýninguna Veisla í sviðsetningu Borgarleikhússins
Dansari ársins
- Charmene Pang fyrir hlutverk sitt í sýningunni Dagdraumar í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
- Emilía Benedikta Gísladóttir fyrir sýninguna Á milli stunda – Ég býð mig fram þrjú, í sviðsetningu Unnar Elísabetar Gunnarsdóttur
- Inga Maren Rúnarsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni ÆVI í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Búningar ársins
- Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir fyrir sýninguna Ekkert er sorglegra en manneskjan í sviðsetningu Adolfs Smára Unnarssonar og Friðriks Margrétar Guðmundssonar í samstarfi við Tjarnarbíó
- Júlíanna Lára Steingrímsdóttir fyrir sýninguna Dagdraumar í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
- María Th. Ólafsdóttir fyrir sýninguna Kardemommubærinn í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikmynd ársins
- Egill Ingibergsson og Móeiður Helgadóttir fyrir sýninguna Sunnefa í sviðsetningu Leikhópsins Svipir í samstarfi við Tjarnarbíó
- Elín Hansdóttir fyrir sýninguna Vertu úlfur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Finnur Arnar Arnarson fyrir sýninguna Kafbátur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Lýsing ársins
- Björn Bergsteinn Guðmundsson og Halldór Örn Óskarsson fyrir sýninguna Vertu úlfur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Hafliði Emil Barðason fyrir sýninguna Ekkert er sorglegra en manneskjan í sviðsetningu Adolfs Smára Unnarssonar og Friðriks Margrétar Guðmundssonar í samstarfi við Tjarnarbíó
- Ólafur Ágúst Stefánsson fyrir sýninguna Haukur og Lilja – Opnun í sviðsetningu EP Sviðslistahóps
Tónlist ársins
- Friðrik Margrétar Guðmundsson fyrir sýninguna Ekkert er sorglegra en manneskjan í sviðsetningu Adolfs Smára Unnarssonar og Friðriks Margrétar Guðmundssonar í samstarfi við Tjarnarbíó
- Davíð Berndsen, Þórður Gunnar Þorvaldsson, Prins Póló, og Snorri Helgason fyrir sýninguna Veisla í sviðsetningu Borgarleikhússins
- Þórunn Gréta Sigurðardóttir fyrir óperuna KOK
Söngvari eða söngkona ársins
- Hanna Dóra Sturludóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni KOK í sviðsetningu leikhópsins Svartur jakki í samstarfi við Borgarleikhúsið
- María Sól Ingólfsdóttir fyrir hlutverk sitt í sýningunni Ekkert er sorglegra en manneskjan í sviðsetningu Adolfs Smára Unnarssonar og Friðriks Margrétar Guðmundssonar í samstarfi við Tjarnarbíó
- Sveinn Dúa Hjörleifsson fyrir hlutverk sitt í sýningunni Die Schöne Müllerin í sviðsetningu Sveins Dúa Hjörleifssonar í samstarfi við Tjarnarbíó
Hljóðmynd ársins
- Aron Þór Arnarsson, Magnús Tryggvason Eliassen og Steingrímur Teague fyrir sýninguna Kafbátur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Elvar Geir Sævarsson og Valgeir Sigurðsson fyrir sýninguna Vertu úlfur í sviðsetningu Þjóðleikhússins
- Stefán Már Magnússon fyrir sýninguna Haukur og Lilja – Opnun í sviðsetningu EP sviðslistahóps