Samtal við leikhús í Veröld-Húsi Vigdísar
Samtal við leikhús er málfundaröð til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur þar sem atvinnuleikhúsfólk og fræðimenn koma saman og ræða uppsetningar á leikverkum sem eru í sýningu hjá leikhúsunum.
Í Veröld – húsi Vigdísar þann 17. febrúar kl. 17:00
verða pallborðsumræður um sýningu Borgarleikhússins á Vanja frænda eftir rússneska leikskáldið Anton Tsjékhov.
- Hvaða erindi á verkið við okkur í dag?
- Hvernig nálgast leikstjóri uppsetningu verksins?
- Hvernig vinnur þýðandinn úr textanum?
- Þessum spurningum og fleirum verður velt upp í Veröld þann 17. febrúar
Í pallborði verða Rebekka Þráinsdóttir, aðjunkt í rússnesku, Gunnar Pétursson þýðandi verksins, Brynhildur Guðjónsdóttir leikstjóri og Valur Freyr Einarsson leikari. Guðrún Kristinsdóttir, doktorsnemi í frönskum fræðum, stýrir umræðum.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir!