Nýr söngleikur um Vilhjálm Vilhjálmsson í bígerð
Leikverk byggt á ævi söngvarans Vilhjálms Hólmars Vilhjálmssonar verður sett upp á fjölum Borgarleikhússins leikárið 2020-2021. Höfundar verksins eru þeir sömu og settu upp vinsælasta leikverk Borgarleikhússins frá upphafi, Elly.
Gísli Örn Garðarsson leikstjóri er annar höfunda fyrirhugaðs verks, ásamt Ólafi Agli Egilssyni.
Elly sem frumsýnd var í mars 2017 varð með tímanum vinsælasta sýning Borgarleikhússins, ekkert verk hefur verið sýnt jafn oft og yfir hundrað þúsund manns sáu verkið í Borgarleikhúsinu.
Vilhjálmur Vilhjálmsson fæddist 11. apríl árið 1945 í Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjum. Villi var yngstur fimm systkina, Elly var næst elst systkinanna. Villi hóf árið 1965 að syngja með hljómsveit Ingimars Eydal en tónlistin varð aðalstarf Vilhjálms árið 1967. Villi og Elly sungu jafnan saman og kom platan Systkinin Vilhjálmur og Elly syngja saman árið 1969. Unnu þau alls fjórar plötur saman og náðu þær allar miklum vinsældum.
Vilhjálmur lést í Lúxemborgar árið 1978 í sviplegu umferðarslysi.