Back to the future í Versló
Listafélag Versló sýnir um þessar mundir leiksýningu byggða á hinum vinsæla þríleik Back To The Future eða Aftur til Framtíðar.
Sýningin fjallar um Marty Mcfly sem lifir frekar eðlilegu lífi fyrir utam það að eiga brjálaðan vísindamann að besta vin, Dr. Emmet Brown. Samband þeirra er mjög fyndið og er það einmitt ein af mörgum uppfinningum Dr. Browns sem sendir Marty óvart 30 ár aftur í tímann. Þar þarf hann að finna leið til að komast aftur til baka ásamt því að vinna hörðum höndum að því að laga stóra flækju sem hann bjó til í lífi ungra foreldra sinna til að lífið í framtíðinni verði eins og það eigi á að vera. Margt skrítið og fyndið verður á vegi Marty er við fylgjum honum í gegnum þetta skemmtilega ævintýri.
Leikhópurinn samanstendur af:
Bjarna Kristbjörnssyni – George Mcfly
Elísabeth Clousen – Lauren Baines
Gunnar Hrafn Kristjánsson – Marty Mcfly
Guðríður Jóhanssdóttir – Jennifer Parker
Halldóra Elín Einarsdóttir – Vikky
Pétur Steinn Atlason – Husky
Ilmur María Arnarsdóttir – Strickland
Killian G. E. Briansson – Biff
Snorri Beck Magnússon – Dr. Brown
Leikstjóri Júlíana Sara Gunnarsdóttir.
Sýningin er sýnd í hátíðarsal skólans.