Hlíðaskóli sigurvegari Skrekks 2019
Hlíðaskóli stóð uppi sem sigurvegari á úrslitakvöldi Skrekks sem fram fór í Borgarleikhúsinu í kvöld. Skrekkur er hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs og voru úrslitin sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Atriði Hlíðaskóla bar titilinn Þið eruð ekki ein.
Átta grunnskólar tóku þátt í úrslitunum að þessu sinni; Árbæjarskóli, Breiðholtsskóli, Hagaskóli, Háteigsskóli, Hlíðaskóli, Laugalækjarskóli, Réttarholtsskóli og Seljaskóli.
Árbæjarskóli hafnaði í öðru sæti og Hagaskóli í því þriðja.
Atriðin voru hvert öðru glæsilegri og ljóst að framtíðin í lista- og menningarlífi okkar er björt.
Leikhus.is óskar Hlíðaskóla innilega til hamingju með sigurinn og öllum þátttakendum fyrir frábæra skemmtun og hlökkum til keppninnar að ári.
Dómnefndina skipuðu: Elísabet Indra Ragnarsdóttir, fulltrúi Hörpu tónlistarhúss, Halla Björg Randversdóttir, fulltrúi Borgarleikhúss, Gréta Kristín Ómarsdóttir, fulltrúi Þjóðleikhúss, Lóa Kolbrá Friðriksdóttir, fulltrúi Íslenska dansflokksins og Sigfríður Björnsdóttir deildarstjóri listfræðslu sjá Skóla og frístundasviðs.