1001 Skór sýnt í FG
1001 skór er stórskemmtilegur og ljúfur barnasöngleikur sem leikfélagið Verðandi setur upp. Þetta er glænýr söngleikur unninn af núverandi og fyrrverandi nemendum af listadeild Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Leikverkið fjallar um íbúa Skjófjarðar, en öllum skónum í bænum hefur verið stolið. Stúlkan Hanna leggur af stað í ferðalag til að finna sökudólginn. Á leið sinni kynnist hún nýju fólki, táknmálströllum, vatnadísum og öðrum kynjaverum, sumar vinveittari en aðrar. Boðskapur leikritsins fjallar fyrst og fremst um að slæmt sé að stela og að ekki skal dæma bókina eftir kápunni.
Þetta er langstærsta barnaleikrit sem leikfélagið hefur nokkurn tímann sett upp, með stærstu sviðsmyndina, vel unnin lög, flotta dansa, óaðfinnanlega leikstjórn og stórbrotna leikinn. En Verðandi hefur sett upp frumsamin barnaleikrit síðan 2015. Allir peningar renna til sýningarinnar Reimt sem er söngleikur eftir Karl Ágúst Úlfsson og Þorvald Bjarna Þorvaldsson, sem settur verður upp í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ næsta vor.
Listrænir stjórnendur:
Handritshöfundur: Sif Guðmundsdóttir
Tónlistar og söngtexta höfundur: Eygló Strand Jóhannesdóttir
Leikstjóri: Agnes Emma Sigurðardóttir
Aðstoðar leikstjóri: Andri Páll Guðmundsson
Danshöfundur: Soffía Ásbjörg Grétarsdóttir
Ljós: Sveinn Elliði Björnsson
Tónlistar og söngtexta höfundur: Eygló Strand Jóhannesdóttir
Leikstjóri: Agnes Emma Sigurðardóttir
Aðstoðar leikstjóri: Andri Páll Guðmundsson
Danshöfundur: Soffía Ásbjörg Grétarsdóttir
Ljós: Sveinn Elliði Björnsson
Leikarar:
Sigrún Ósk Karlsdóttir – Hanna
Helga Salvör Jónsdóttir – Stefán
Ugla Helgadóttir – Nikulás Betri
Sigríður Rut Ragnarsdóttir Ísfeld – Vatnadísin Anahita
Halldór Ívar Stefánsson – Veigar Völundarson
Natalía Erla Arnórsdóttir – Gústaf
Eva Berglind Traustadóttir – Lena
Eva Bryndís Ágústsdóttir – Dísa Lísa
Hrefna Hlynsdóttir – Pálína