Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz
Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til landsins Oz og hvernig hún kynnist heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu og kemst í kast við vondu Vestannornina sem vill ná af Dórótheu silfurskónum sem henni eru gefnir. Spurning er bara hvort Galdrakarlinn ógurlegi í Oz getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar.
Höfundur – Ármann Guðmundsson
Höfundar laga – Ármann Guðmundsson, Baldur Ragnarsson, Eggert Hilmarsson og Snæbjörn Ragnarsson
Höfundar söngtexta – Anna Bergljót Thorarensen, Ármann Guðmundsson, Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir
Leikstjóri – Ágústa Skúladóttir
Leikendur:
Anna Bergljót Thorarensen
Baldur Ragnarsson
Huld Óskarsdóttir
Rósa Ásgeirsdóttir
Sigsteinn Sigurbergsson