Vísindasýning Villa
Villi og Vala bregða á leik með tilraunaglösin sín, gera ótrúlegar uppgötvanir og útskýra fyrir okkur mögnuð fyrirbæri úr heimi vísindanna. Hvað er rafmagn? Hvað er hljóð? Hvað er blóð og bein?
Öll börn þekkja Vísinda-Villa og uppátæki hans í sjónvarpinu. Villi hefur oft bjargað sjálfum sér og vinum sínum úr vanda með alls konar uppfinningum enda hefur hann brennandi áhuga á vísindum. Uppáhaldsspurningin hans er: „Af hverju?“
Nú stígur Vísinda-Villi á svið Borgarleikhússins í fyrsta sinn og fer með áhorfendur í æsispennandi ferðalag um heim vísindanna. Með honum er hún Vala sem hefur ráð undir rifi hverju og fer létt með að leysa óyfirstíganleg vandamál. Ekkert er þeim óviðkomandi hvort sem um er að ræða svarthol, atóm, köngulær, tré, blóð, heimspeki eða stjörnuhimininn svo eitthvað sé nefnt. Þau gera tilraunir og útskýra hluti, fá út óvæntar niðurstöður og spyrja spurninga sem engum hefði dottið í hug að spyrja – hvað þá að fá svör við.
Aðstandendur Höfundar: Vilhelm Anton Jónsson, Vala Kristín Eiríksdóttir og Vignir Rafn Valþórsson | leikstjóri: Vignir Rafn Valþórsson | leikmynd & búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir | lýsing: Magnús Helgi Kristjánsson | Tónlist: Vilhelm Anton Jónsson | leikgervi: Margrét Benediktsdóttir | leikarar: Vilhelm Anton Jónsson og Vala Kristín Eiríksdóttir