Enginn hittir einhvern
Enginn hittir einhvern er opnunarsýning í nýju leikrými Norræna Hússins/ Black Box. Höfundur verksins er hinn beitti penni Peter Asmussen sem meðal annars skrifaði handritið af kvikmyndinni Breaking the Waves með Lars von Trier. Þetta er í fyrsta sinn sem leikverk eftir hann er sýnt hérlendis. Asmussen vann hin virtu dönsku Reumert verðlaun sem leikskáld ársins fyrir Enginn hittir einhvern.
Enginn hittir einhvern er kraftmikið, innblásið og afgerandi leikrit sem hrífur áhorfendann með sér í spennandi ferðalag um furður lífsins. Verkið leiðir áhorfandann inn í samband tveggja ástríðufullra einstaklinga sem birtast okkur í sextán stuttum senum sem eru allt í senn fyndnar, ögrandi og ljóðrænar.
Peter Asmussen er fæddur árið 1957. Hann býr í Kaupmannahöfn og skrifar fyrir leikhús, kvikmyndir, sjónvarp og útvarp. Asmussen hefur einnig sent frá sér nokkrar skáldsögur og samið óperulíbrettó. Leikstjóri verksins er Simon Boberg sem gjörþekkir Asmussen og hefur leikstýrt mörgum frumuppfærslum á verkum hans. Einnig koma að verkinu hópur framúrskarandi listamanna frá Noregi, Finnlandi, Danmörku og Íslandi til að skapa verkinu umgjörð.
“Haldi maður bara örlítið uppá leikhús verður maður dreginn á tálar og manni skemmt frábærlega og allar leikhúsóskir manns munu rætast á þessari leiksýningu. Leikritið er aðeins klukkutími að lengd en satt best að segja það besta sem ég hef séð í áraraðir.“
-Lars Wredström, Börsen
Höfundur: Peter Asmussen
Þýðandi: Jón Atli Jónasson
Leikstjóri. Simon Boberg
Leikarar: María Ellingsen og Björn Ingi Hilmarsson
Hreyfingar: Raisa Foster
Tónlist: Andreas Ljones
Leikmynd. Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Vefsíða verksins www.enginn.is
Norræna húsið
AALTO Bistro
AALTO Bistro býður upp á tveggja rétta leikhúsmatseðil í tilefni sýningarinnar sjá nánar hér. ALTO Bistro er vinalegur og spennandi veitingastaður í Norræna húsinu sem rekinn er undir dyggri stjórn og listfengi Sveins Kjartanssonar matreiðslumeistara og sjónvarpskokks.