Umhverfis jörðina á 80 dögum
Nýr íslenskur barna- og fjölskyldusöngleikur!
Karl Ágúst og Siggi Sigurjóns skemmta yngri kynslóðinni á sinn einstaka hátt, en þeir hafa skrifað nýtt barnaleikrit fyrir Þjóðleikhúsið, sína eigin útgáfu af skáldverkinu Umhverfis jörðina á 80 dögum eftir Jules Verne.
ÞETTA ER HEIMURINN OKKAR ALLRA
Hann hélt að hann kæmist í kringum hnöttinn á mettíma.
Hann hélt að hann þekkti heiminn.
Hann hélt að hann yrði sami maður á eftir.
Hann hafði rangt fyrir sér.
Sláumst í för með Filíasi Fogg um fjöll og dali, upp í himinhvolfið, yfir sléttur, úthöf og eyðimerkur, gegnum skóga og stórborgir ofan í grafhýsi og um undirdjúp hafsins. Heimurinn breiðir úr sér fyrir framan okkur með öllum sínum undrum, en þó er það fólkið sem alltaf er mesta undrið. Skyldi okkur takast að ljúka þessari svaðilför á 80 dögum?
Leikarar eru Karl Ágúst Úlfsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason, ásamt Baldri Ragnarssyni, Gunnari Ben, Jóni Stefáni Sigurðssyni og Stellu Björk Hilmarsdóttur.