Hugmyndir Antonins Artaud í forgrunni
Næstu sunnudaga verða fluttir þrír þættir í Útvarpsleikhúsinu þar sem hugmyndir franska leikhúsmannsins Antonins Artaud verða í forgrunni en hann var meðal merkustu frumkvöðla á sviði leiklistar á 20.öldinni.
Flutt verða tíu stuttleikrit og einleikir eftir ritlistarnema í Háskóla Íslands og nemendur á sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands, auk eins eftir umsjónarmann þáttanna en öll verkin eru samin í anda Antonins Artaud, og hugmynda hans um leikhús grimmdarinnar. Guðrún Kristinsdóttir og Trausti Ólafsson flytja texta eftir Artaud auk þess sem sagt verður frá honum og verkum hans.
Höfundar leikþátta: Eyþór Gylfason, Gréta Kristín Ómarsdóttir, Haukur Valdimar Pálsson, Jóhanna María Einarsdóttir, Jóhannes Ólafsson, Ólafur Steinn Ingunnarson, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Rakel Brynjólfsdóttir, Sigrún Valdimarsdóttir, Trausti Ólafsson og Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.
Leikstjórar: Ásdís Skúladóttir, Jóhanna María Einarsdóttir, Jóhannes Ólafsson, Ólafur Steinn Ingunnarson, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sigrún Valdimarsdóttir, Trausti Ólafsson, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason og Þórunn Magnea Magnúsdóttir. Auk þess koma 34 leikarar og flytjendur fram í þáttunum.
Eva Sóley Sigurðardóttir og Sigrún Valdimarsdóttir unnu að samsetningu og uppbyggingu handrits þáttanna ásamt Trausta Ólafssyni sem hafði umsjón með gerð þeirra.
Kjartan Holm er höfundur frumsaminnar tónlistar sem flutt er í þáttunum.
Umsjón: Trausti Ólafsson.
Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson.
Í 1. þætti má heyra:
Waldeck-málið eftir Þorvald Sigurbjörn Helgason
Persónur og leikendur:
Anton Waldeck: Arnmundur Ernst Backman
Thompson rannsóknarlögreglumaður: Baltasar Breki Samper
Howard: Eysteinn Sigurðarson
Prestur: Albert Halldórsson
Stúlka: Kristín Pétursdóttir
Leikstjórn: Þorvaldur Sigurbjörn Helgason
Upprisa Artaud eftir Sigrúnu Valdimarsdóttur.
Rödd: Jón Júlíusson
Leikstjórn: Sigrún Valdimarsdóttir
Ég er leikhúsið eftir Jóhönnu Maríu Einarsdóttur
Persónur og leikendur:
Rödd af segulbandi: Þórunn Magnea Magnúsdóttir
Antonin Artaud: Guðrún Kristinsdóttir og Trausti Ólafsson
Leikstjórn: Trausti Ólafsson
Manséttan eftir Rakel Brynjólfsdóttur
Persónur og leikendur:
Kona: Anna Kristín Arngrímsdóttir
Sonur hennar: Jakob Þór Einarsson
Útvarpsþulur: Anna Sigríður Einarsdóttir
Leikstjórn og lestur sviðslýsinga: Ásdís Skúladóttir