Tímans Gestur í FG
Leikfélagið Verðandi, leikfélag Fjölbrautarskólans í Garðabæ stendur nú fyrir barnasýningu til að styrkja menningarleg tengsl við yngri deildir grunnskóla ásamt því að hafa fjáröflun fyrir leikfélagið sjálft, sem ætlar að setja upp söngleikinn South Park: Bigger, Longer & Uncut í leikstjórn Agnars Jóns Egilssonar.
Nemendur Fjölbrautarskólans í Garðabæ koma aðeins að verkinu. Tímans Gestur er eftir Reginn Tuma Kolbeinsson, Urði Bergsdóttur og Unni Agnesi Níelsdóttur. Verkið segir frá tímaflakkaranum Gesti, hann ferðast um tímann í kistu, sem ung stúlka að nafni Emilía á. Eitt kvöldið hittast þau og ferðast fram og aftur í tímann, þau hitta t.d. risaeðlur, vonda drottningu, dreka og fara meðal annars á tunglið.
Leikstjóri er Unnur Agnes Níelsdóttir. Tíu leikarar eru í sýningunni og bregða þau sér í ýmis hlutverk. Tímans Gestur verður frumsýnt þann 7. nóvember næstkomandi.
Tímans Gestur er bráðskemmtilegt og ævintýralegt verk sem hentar öllum börnum frá 1.-7. bekk í gruunskóla.
Upplýsingar um komandi sýningartíma og leikfélagið sjálft má finna á facebook síðu þeirra: https://www.facebook.com/verdandi?fref=ts