Í HJARTA HRÓA HATTAR
Í þessari nýju sýningu úr smiðju Vesturports, Þjóðleikhússins og Royal Shakespeare Company ræna Hrói höttur og hinir miskunnarlausu liðsmenn hans hvern þann sem vogar sér inn í Skírisskóg, án þess að gefa nokkuð til hinna fátæku. Hér er það hin hugrakka Maríanna sem þarf að berjast fyrir réttlætinu og takast á við hin myrku öfl, en Jóhann prins þjakar almenning með ofbeldi og nýjum og hærri sköttum, og ætlar sér að leggja allt ríkið undir sig. Hrói getur lært sitthvað af Maríönnu um hvað það er að vera raunveruleg hetja, því án hennar verður landinu steypt í glötun.
Það er glæsilegur leikhópur sem kemur saman í þessari ævintýrasýningu í Þjóðleikhúsinu. Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld, sem hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin, hefur samið nýja tónlist fyrir sýninguna og flytur hana ásamt hljómsveit á sviðinu.
Gleymdu öllu því sem þú þykist vita um Hróa hött! – Hér er goðsögunni um þennan fræga útlaga snúið á hvolf í þessari leiksýningu, sem hefur nú þegar slegið í gegn beggja vegna Atlantshafsins.