30.apríl   Prenta  Netfang 

Fimmtudaginn 30.apríl sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna sitt fjórða örverk um
áráttur kenndir og kenjar. Örverkin sem öll eru kennd við mánuðinn sem þau
eru flutt í, eru stuttar hugleiðingar um mannlega tilvist í Reykjavík
dagsins í dag og eru hvert um sig frumsýnd síðasta fimmtudag í mánuði allt
árið 2010.

APRÍL er sagður grimmastur mánaða og hugleiðir leikhópurinn þá grimmd sem
fellst í áfellisdómum yfir þeim sem leiddu þjóðina til falls. Í stað þess að
einblína á dóminn hefur leikhópurinn einsett sér að veita fyrirgefningunni
rými. Áhugaleikhús atvinnumanna býður fólki að taka þátt í einskonar
friðþægingarathöfn sem felst í játningu eða bón um fyrirgefningu í beinni
útsendingu á netinu. Athöfnin fer fram í ÚTGERÐINNI, nýju gjörningarými
Hugmyndahúss háskólanna við Grandagarð 16, kl.12:30 fimmtudaginn 30.apríl en
sýningunni er varpað beint á netið á slóðina www.herbergi408.is.
Ef fólk liggur með eitthvað þungt á hjartanu og hefur þörf til þess að
biðjast fyrirgefningar gefst hér gullið tækifæri til skrifta í votta
viðurvist.
 Leikarar Áhugaleikhúss atvinnumanna munu ríða á vaðið með játningarnar og
leiða athöfnina. Athöfnin er öllum opin og er ókeypis aðgangur. Hægt er að
skoða fyrri örverk leikhússins á www.herbergi408.is eða á
www.ahugaleikhus-atvinnumanna.com.

Leikstjóri.Steinunn Knútsdóttir
Leikarar:
Aðalbjörg Árnadóttir
Arndís Egilsdóttir
Árni Pétur Guðjónsson
Hannes Óli Ágústsson
Orri Huginn Ágústsson
Ólöf Ingólfsdóttir
Jórunn Sigurðardóttir
Lára Sveinsdóttir
Magnús Guðmundsson
Marta Nordal
Sveinn Ólafur Gunnarsson


allar upplýsingar veitir Steinunn Knútsdóttir, 6624805
 

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is