Freyvangsleikhúsið
Halaleikhópurinn
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikhópurinn Lotta
Leynileikhúsið
Hugleikur
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Ölfuss
Leikfélagið Grímnir
Leikfélagið Peðið
Stúdentaleikhúsið
| Draugar lifa góðu lífi í Óperunni við Ingólfsstræti | |
|
|
Söngskemmtun Kórs Íslensku óperunnar ber yfirskriftina Draugagangur í Óperunni og
Kór Íslensku óperunnar efnir nú til söngskemmtunar í Óperunni, þar sem draugur Webber er að vísu fjarri góðu gamni en hinum einu og sönnu draugum, íslensku draugunum, er aftur á móti gert hærra undir höfði. Á efnisskránni eru valin lög og tónsmíðar sem tengjast draugum og þjóðtrú, allar eftir íslensk tónskáld frá ýmsum tímum og úr ýmsum áttum. Þannig er á efnisskránni allt frá íslenska þjóðlaginu Móðir mín í kví, kví til hins vinsæla popplags Magnúsar Eiríkssonar, Garún. Það er Skarphéðinn Þór Hjartarson kórfélagi sem tekið hefur dagskrána saman og útsett þau lög sem ekki voru samin með blandaðan kór í huga, en Antonía Hevesi leikur með á píanó. Um leikræna útfærslu sér Ágústa Skúladóttir og lýsingu hannar Páll Ragnarsson. Íslenska óperan Ingólfsstræti 101 Reykjavík Iceland http://www.opera.is |
|