Freyvangsleikhúsið
Halaleikhópurinn
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikhópurinn Lotta
Leynileikhúsið
Hugleikur
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Ölfuss
Leikfélagið Grímnir
Leikfélagið Peðið
Stúdentaleikhúsið
| Frumsýning 16. apríl. - Stræti eftir Jim Cartwright | |
|
|
Nemendaleikhúsið æfir nú lokaverkefni sitt Stræti eftir Jim Cartwright en eftir Jim Cartwright*, einn af þekktari samtímahöfundum Breta. Leikritið kom fram fyrir rúmum tveim áratugum og sló strax rækilega í gegn og fór á fjalir leikhúsa víða um heim. Það skýtur alltaf upp kollinum öðru hverju og virðist alltaf eiga erindi. Í verkinu er brugðið upp myndum af íbúum götu einnar í lítilli iðnaðarborg, þar sem fátækt og atvinnuleysi hrjáir íbúana. Leikritið gerist á einni kvöldstund og við fáum augnabliks innsýn í fjölbreytilega mannlífsflóru strætisins. Þar eru allir komnir í helgargírinn og eru staðráðnar í skella sér út á lífið þetta umrædda kvöld og sletta rækilega úr klaufunum. Enda fátt annað gerlegt í atvinnuleysinu og eymdinni en halda dauðahaldi í vonina um betri tíma. Við kynnust skrautlegum persónuleikum og fjölbreytilegu litrófi mannlífsins í þeirri blöndu af kaldhæðni, ljóðrænu og fyndni, sem einkenna höfundinn. Hann fjallar um persónur sínar af samúð og hjartahlýju og trúir því að allir eigi sér viðreisnar von. En til þess þarf sameiginlegt átak samfélags og þegna. Í útskriftarhópnum er sjö verðandi leikarar, þau *Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Ævar Þór Benediktsson*. Flest þeirra leika fleiri en eitt hlutverk í sýningunni, því alls er hlutverkin hátt í þrjátíu talsins. Þýðandi verksins er *Árni Ibsen*, um tónlist sjá *Vala Gestsdóttir og Arndís * *Hreiðarsdóttir*, lýsingu annast*Björn Bergsteinn Guðmundsson og Páll Ragnarsson*, búninga gerir *Filippía Elísdóttir*, leikmynd *Vytautas Narbutas* og leikstjóri er *Stefán Baldursson.* *Sýningar verða sem hér segir:* föstudagur16. aprílFrumsýningUppseltsunnudagur18. apríl2. sýningmiðvikudagur21. apríl3. sýningfimmtudagur22. apríl4. sýningföstudgur23. apríl5. sýning laugardagur24. apríl6. sýningmiðvikudagur28. apríl7. sýningfimmtudagur29. apríl8. sýningföstudagur30. apríl9. sýninglaugardagur1. maí10. sýning *Einungis verður um takmarkaðan sýningarfjölda að ræða og því ráðlegt að tryggja sér miða í tíma.* *Miðasala fer fram á leiklist@lhi.is, í s: 895 6994 og á midi.is<http://www.midi.is/> . Einnig er miðasala sýningardaga í Nemendaleikhúsinu frá kl. 18.00 – 20.00.* |
|