Dúfurnar frumsýnt í kvöld á Nýja sviðinu   Prenta  Netfang 
 Dúfurnar frumsýnt  kl. 20 á Nýja sviðinu
 *   Höfundurinn David Gieselmann verður viðstaddur frumsýninguna
 *   Verðlaunaleikrit frá einu af áhugaverðustu leikskáldum Þýskalands
 *   Kolsvartur húmor með taugabiluðu ívafi

Dúfurnar eftir David Gieslemann í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur verður
frumsýnt á Nýja sviðinu laugardaginn 10. apríl. Höfundurinn David Giselmann verður
viðstaddur frumsýninguna og þetta önnur heimsókn hans til landsins. Giselmann hefur
áður skrifað leikritið Herra Kolpert sem farið hefur sigurför um heiminn undanfarin
ár og var meðal annars sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Dúfurnar var verðlaunað sem
besta nýja gamanleikritið í Þýskalandi á síðasta ári. Verkið er kolsvartur
gamanleikur um mannshvarf sem er kryddaður með hráum gítarleik Vilhelms Anton
Jónssonar og söng leikaranna.

Átta leikarar taka þátt í sýningunni og eru þau á sviðinu alla sýninguna. Leikmynd
Ilmar Stefánsdóttur er sannkallað listaverk þar sem áhorfandanum er boðið til sætis
í drifhvítum sal. Mikill spenningur er fyrir verkinu hjá leikhúsáhugamönnum og nú
þegar eru uppseldar 18 sýningar.



Dúfurnar eftir David Gieslemann í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur verður
frumsýnt á Nýja sviðinu laugardaginn 10. apríl. Höfundurinn hefur fylgst með
uppsetningunni og verður viðstaddur frumsýninguna í Borgarleikhúsinu. Er þetta önnur
heimsókn Gieselmanns til landsins en fyrri heimsókn hans var í tengslum við
frumsýningu á verki hans Herra Kolpert sem Leikfélag Akureyrar sýndi fyrir nokkrum
árum við góðan róm. Herra Kolpert hefur farið sigurför um heiminn og verið sett upp
beggja vegna Atlandshafsins við gríðarlega góðar undirtektir. David Gieselmann er
fæddur í Köln í Þýskalandi árið 1972. Hann stundaði nám í leikritun við
Listaháskólann í Berlín á árunum 1994 til 1998. Honum var boðið að starfa í Royal
Court-leikhúsinu í London árið 1999 og hann tók þátt í kynningu nýrra þýskra
leikrita í sama leikhúsi ári síðar.

Dúfurnar  var verðlaunað sem besta nýja gamanleikritið í Þýskalandi á síðasta ári og
er ferðalag þess um leikhúsheiminn rétt að hefjast.  Dúfurnar er kolsvartur
gamanleikur um mannshvarf. Verkið hefst í jólaboði lítils fyrirtækis þar sem
forstjórinn leggur á ráðin um eigið hvarf, "Ég vil burt héðan." er fyrsta setning
verksins sem síðan snýst um hvarf eða ekki-hvarf forstjórans og hvernig það hefur
áhrif á líf þeirra persóna sem standa honum næst. Sálfræðingur flækist inn í líf
persónanna en hann sjálfur er svo flæktur í eigin vitleysu að hann man ekki nöfn
sjúklinga sinna. Leikhópurinn er á sviðinu allan tíman og fléttast því margar sögur
saman sem allar tengjast.  Um verkið segir höfundurinn "Hvað Dúfurnar varðar þá
ákvað ég mjög snemma að ég ætlaði að nota þennan samanfléttaða stíl, þar sem tvær,
þrjár eða jafnvel fleiri senur sköruðust, röskuðu og breyttu hver annarri. Mig hafði
lengi langað til að semja leikrit af því tagi. Út frá þessari hugmynd kom svo
auðvitað þessi tiltölulega mikli fjöldi persóna. Annars væri þessi stíll algerlega
tilgangslaus. Þegar ég hafði skrifað nokkur samtöl bættist þessi hugdetta um hvarfið
við. Einhver segir skyndilega:  "Ég vil burt héðan." Afleiðingin varð sú að þetta
varð þema verksins: Þegar einhver tilkynnir hvarf sitt getur það ekki verið
aukaatriði."

Verkið er kryddað með hráum gítarleik Vilhelms Anton Jónssonar og söng leikaranna
sem hvert um sig taka eitt lag. Átta leikarar taka þátt í sýningunni og eru þau á
sviðinu alla sýninguna. Leikmynd Ilmar Stefánsdóttur er sannkallað listaverk þar sem
áhorfandanum er boðið til sætis í drifhvítum sal og er búið að tjalda hvítu bæði
veggi og loft til að viðhalda kaldri og hvítri stemmingu. Mikill spenningur var
strax fyrir verkinu í haust og nú þegar eru uppseldar 18 sýningar.
Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir, leikmynd og búningar eru í höndum Ilmar
Stefánsdóttur, lýsing: Þórður Orri Pétursson, tónlist Vilhelm Anton Jónsson.
Leikarar eru: Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Jörundur Ragnarsson,
Elma Lísa Gunnarsdóttir, Halldór Gylfason, Sigurður Sigurjónsson, Unnur Ösp
Stefánsdóttir og Nína Dögg Filippusdóttir

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is