Freyvangsleikhúsið
Halaleikhópurinn
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikhópurinn Lotta
Leynileikhúsið
Hugleikur
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Ölfuss
Leikfélagið Grímnir
Leikfélagið Peðið
Stúdentaleikhúsið
| Starfsfólk Borgarleikhússins les rannsóknar-skýrslu í heild sinni | |
|
|
· Starfsfólk Borgarleikhússins les skýrsluna skýrsluna hver með sínu nefi. Starfsfólk Borgarleikhússins hefur ákveðið að lesa skýrsluna upp í heild sinni, en hún er um 2000 blaðsíður að lengd, og bjóða landsmönnum að hlýða á upplesturinn. Listamenn munu ekki leggja mat á innihaldið né gera tilraun til að túlka skýrsluna með neinum hætti. Lesturinn hefst um leið og skýrslan hefur verið gefin út og mun lesturinn standa dag og nótt þar til skýrslan hefur öll verið lesin. Um 45 leikarar munu taka þátt í upplestrinum sem áætlað er að taki 3-5 sólarhringa. Landsmönnum býðst að koma í Borgarleikhúsið og hlýða á skýrsluna að hluta eða í heild. Verður leikhúsið opið allan sólarhringinn meðan á lestrinum stendur en flutningnum verður einnig í beinni á vef leikhússins. Leikhúsið verður eins konar griðarstaður þar sem fólk getur komið, hlustað á lesturinn og hugleitt efnið, innihaldið og orsakirnar. Borgarleikhúsið kappkostar að eiga í virku samtali við samfélagið og taka á brýnum samfélagsmálum. Frá bankahruni hefur leikhúsið tekið á málefnum líðandi stundar með ýmsum hætti. Skýrslan Skýrslunnar hefur verið beðið lengi og ljóst að margir binda vonir við að innihald hennar varpi ljósi á aðdraganda bankahrunsins í október 2008. Útgáfu skýrslunnar hefur ítrekað verið frestað og eru því margir orðnir óþreyjufullir. Margir hafa sagt að skýrslan sé ein sú mikilvægasta sem ráðist hefur verið í að semja frá stofnun lýðveldisins. Af fregnum að dæma er þetta viðamikil samantekt sem erfitt og tímafrekt verður fyrir almenna borgara að kynna sér í hörgul. Líklega munu hinir ýmsu aðilar, þ.á.m. fjölmiðlar, túlka innihaldið hver með sínum hætti. Flutningur starfsfólks Borgarleikhússins Starfsfólki Borgarleikhússins þótti við hæfi að bregðast við útgáfu skýrslunnar enda mikilvægt mál sem legið hefur á þjóðinni um langa hríð. Því var ákveðið að lesa skýrsluna fyrir opnum tjöldum á Nýja sviðinu. Leikarar hússins munu lesa skýrsluna með aðstoð annarra starfsmanna hússins. Þeir munu skipta sér í tveggja manna vaktir. Hver vakt les í 2-4 klukkustundir og skipta tveir leikarar með sér lestrinum hverja vakt. Útsending á netinu Lestrinum verður varpað beint á netinu á heimasíðu leikhússins, borgarleikhus.is Borgarleikhúsið og samfélagsmálin Eitt helsta keppikefli Borgarleikhússins er að eiga í virku samtali við samfélagið sem það er sprottið úr. Íslenska þjóðin hefur beðið skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis með eftirvæntingu, leikhúsið vill bregðast við því og leggja sitt af mörkum til þess að skýrslan verði aðgengileg öllum, með einföldum og hlutlausum hætti. Um leið er þessi flutningur táknrænn. Leikhúsið verður eins konar griðarstaður þar sem fólk getur komið, hlustað á lesturinn og hugleitt efnið, innihaldið og orsakirnar . Strax eftir hrun bankanna í lok ársins 2008 ákvað Borgarleikhúsið að vinna hratt sýningu sem fjallaði um þær hamfarir sem dunið höfðu yfir. Útkoman var leikritið Þú ert hér sem hlaut frábæra dóma og fjölda Grímutilnefninga. Áfram var haldið og í janúar sl. var frumsýnt leikritið Góðir Íslendingar en listrænir stjórnendur voru þeir sömu og í Þú ert hér. Þeirri sýningu hefur nú nýverið verið boðið á eina virtustu leiklistarhátið Evrópu í Wiesbaden. Fleiri verk Borgarleikhússins hafa endurspeglað með einhverjum hætti þá átakatíma sem þjóðin hefur upplifað á undanförnum misserum. |
|