Síðustu sýningar á Birtíngi   Prenta  Netfang 
Nú fer sýningum að ljúka á uppsetningu Leikfélags Selfoss á leiksýningunni
Birtíngi eftir franska heimspekinginn Voltaire í snilldarlegri þýðingu
Halldórs Laxness. Aðeins eru 4 sýningar eftir svo nú fer hver að verða
síðastur að sjá þessa marglofuðu sýningu.Sagan er í senn þroskasaga hins unga Birtíngs en um leið samfélagsádeila
síns tíma, sérstaklega á mannlegt eðli sem hefur lítið breyst til okkar
tíma. Sagan á um þessar mundir 250 ára afmæli auk þess sem 65 ár eru frá
útgáfu sögunnar á Íslandi.

Uppsetningin á Birtíngi var mjög krefjandi verkefni enda voru saumaðir 76
búningar, unnar 20 hárkollur á þá 15 leikara sem leika öll 76 hlutverkin
(auk 5 sviðsmanna).


Sýningunni hlotnaðist sá heiður að vera valinn af valnefnd á NEATA-hátíðina
á Akureyri 10. – 15 ágúst 2010. NEATA stendur fyrir Norður-Evrópska
áhugaleikhúsráðið og að þeim standa öll Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin.
Alls verða 12 sýningar á hátíðinni frá 10 löndum, 3 frá Íslandi.


                                            Síðustu sýningar:


 Sunnudagur         11. apríl kl. 20:00

 Fimmtudagur       15. apríl kl. 20:00

 Föstudagur          16. apríl kl. 20:30

 Laugardagur        17. apríl kl. 17:00  -  *Uppselt*


Miðapantanir í S: 4822787 og leikfelagselfoss@gmail.com
Nánar er fjallað um sýninguna á www.leikfelagselfoss.is

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is