Vel heppnuð frumsýning   Prenta  Netfang 
Gunnari Þórðarsyni var ákaft fagnað eftir frumsýningu á tónlistar- og sögusýningu hans Gunni Þórðar lífið og lögin á laugardagskvöldið.  Mikil og góð stemning var og ætlaði fagnaðarlátum aldrei að linna. Við vissum öll að Gunnar er einn af okkar fremstu tónlistarmönnum en að hann væri svona skemmtilegur vissu ekki nema þeir sem þekkja hann. Nú getið þið kynnst þessari nýju hlið Gunnars Þórðarsonar á Söguloftinu í Landnámssetrinu.

Í þessi nýju sýningu Gunnars Þórðarsonar rekur hann lífshlaup sitt. Nokkurskonar ævisaga í tali og tónum, hann segir frá uppvexti sínum og æfi, talar um   poppið, og spilar lög þessara tíma. Þetta er  einleikur Gunnars með gítarana á Söguloftinu.

alfaborg 450x250

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is