Einstök upplifun - takmarkaður fjöldi sýninga   Prenta  Netfang 
Þú situr ein(n) á kaffihúsi á aðfangadag, ætlar að taka lífinu með ró og
safna kröftum áður en hátíðina ber að garði. Inn af götunni gengur sú
manneskja sem þú áttir síst von á og vildir ekki undir neinum kringumstæðum
hitta. Hvað gerir þú? Hvað gerir hún? Hvernig mun fortíðin ykkar hafa áhrif
á þennan annars venjulega aðfangadag?

Höfundurinn Þór Rögnvaldsson lætur nú enn og aftur heyra í sér með nýju
athyglisverðu leikriti. Eftir að hafa sigrað leikritasamkeppni af tilefni
hundrað ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur hefur hann ekki setið auðum höndum
og sendir nú frá sér verk sem hefst á örleikriti Strindbergs Hin sterkari
(Den starkere) en síðan leggur Þór út af þessu stefi og prjónar aftan við
meistaraverk Strindbergs fjögur ólík en samtvinnuð tilbrigði; tvö tilbrigði
fyrir konur og önnur tvö fyrir karlleikara. Leikritið heitir þess vegna
Tilbrigði við stef, en það er í senn áhrifamikið, spennandi og á köflum
kómískt verk. Leikararnir eru þeir Valgeir Skagfjörð og Gunnar Gunnsteinsson
sem leika karlhlutverkin og Lilja Þórisdóttir og Guðrún Þórðardóttir í
kvenhlutverkunum. Leikstjóri er Inga Bjarnason sem hefur sett á svið á
fimmta tug leikrita m.a Dauðadans Strindbergs, Trójudætur og Medeu eftir
Evripítes og MakbeðShakespeares. Þetta er uppsetning sem enginn
leikhúsunnandi ætti að láta framhjá sér fara.Nánari upplýsingar á http://www.tilbrigdi.com
Miðapantanir í síma 562 9700 eða með því að senda póst á
mailto:idno@xnet.is

Sýningar
4. feb. Fim kl. 20.00
6. feb. Lau kl. 20.00
11. feb. Fim kl. 20.00
14. feb. Sun kl. 20.00
21. feb. Sun kl. 20.00
25. feb. Fim kl. 20.00
27. feb. Lau kl. 20.00

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is