Freyvangsleikhúsið
Halaleikhópurinn
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikhópurinn Lotta
Leynileikhúsið
Hugleikur
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Ölfuss
Leikfélagið Grímnir
Leikfélagið Peðið
Stúdentaleikhúsið
| Möguleikhúsið er nú á leið til Bandaríkjanna | |
|
|
Möguleikhúsið er nú á leið til Bandaríkjanna með leiksýninguna Völuspá (The Prophecy). Sýningin verður sýnd á Showcase, eða leikhúsmessu í Pittsburgh í Pennsilvaníu, The International Performing Arts for Youth. Völuspá er þar í hópi 20 sýninga víðsvegar að úr heiminum sem valdar voru sérstaklega til þátttöku. Tilgangur leikhúsmessunnar er að kynna það besta sem boðið er upp á í leikhúsi fyrir börn og unglinga fyrir skóla, hátíðir, listamiðstöðvar o.fl.væntanlega kaupendur sýninga í Bandaríkjunum og Kanada. Það er Möguleikhúsinu mikill heiður að hafa fengið boð um þátttöku á þessari leikhúsmessu og er það hiklaust eitt stærsta tækifærið sem leikhúsinu hefur boðist til að kynna sýningar sínar fyrir Bandaríkjamarkað. Völuspá var frumsýnd í Möguleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík vorið 2000. Sýningin var tilnefnd til menningarverðlauna DV fyrir árið 2000 og hlaut Grímuna - íslensku leiklistarverðlaunin 2003 Verkið byggir á hinni fornu Völuspá og veitir áhorfendum sýn inn í hugmyndaheim heiðinnar goðafræði. Þar segir m.a. frá fróðleiksfýsn Óðins, græðgi í skáldamjöðinn, forvitni hans um nútíð og framtíð, Fenrisúlfi, Baldri, Loka, Hugin og Munin og ótal fleiri persónum. Leikstjóri sýningarinnar er Peter Holst, Guðni Franzson stýrði tónlistinni í verkinu og leikmynd og búninga hannaði Anette Werenskiold. Á sviðinu eru Pétur Eggerz sem leikur öll hlutverkin í Völuspá og Stefán Örn Arnarson sellóleikari. Frá því Völuspá var frumsýnd hefur sýningin gert víðreist, m.a. verið sýnd á hátíðum í Rússlandi, Svíþjóð, Kanada, Finnlandi, Færeyjum, Bandaríkjunum Þýskalandi og Frakklandi. Alls eru sýningar orðnar rúmlega 170 talsins, en sýningin var tekin upp að nýju á síðasta ári eftir nokkurra ára hlé og sýnd í leikferð um Bandaríkin. Nánari upplýsingar um leikhúsmessuna í Pittsburgh og þá sem þar koma fram er að finna á heimasíðunni http://www.ipayweb.org/showcase/artists.php einnig er hægt að hafa samband við Pétur Eggerz í s. 8971813 Pétur Eggerz Möguleikhúsið ehf Keilufelli 47 111 Reykjavík s. 562 2669 / 897 1813 moguleikuhusid@moguleikuhusid.is www.moguleikhusid.is |
|